Hafði „enda­þarms­mök“ við sofandi stúlku – Ekki nauðgun, segir lögregla

Lögregla og rík­is­sak­sókn­ari töldu ekki til­efni til að rann­saka hvort nauðgun hefði átt sér stað þegar maður þröngvaði lim sínum í enda­þarm 17 ára stúlku meðan hún svaf. Maðurinn, fað­ir­inn í Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu svo­kall­aða, við­ur­kenndi verkn­að­inn í yfir­heyrslu vegna ann­ars máls og sagð­ist hafa vitað að stúlkan væri mót­fallin enda­þarms­mökum.

Hafði „enda­þarms­mök“ við sofandi stúlku – Ekki nauðgun, segir lögregla
Ekki lýs­ing á nauðgun Sigríður Frið­jóns­dóttir gegnir emb­ætti rík­is­sak­sókn­ara og Helgi Magnús Gunn­ars­son er vara­rík­is­sak­sókn­ari. Embættið tekur undir sjón­ar­mið frá ákæru­sviði lög­reglu um að lýs­ing manns­ins geti ekki talist nauðg­un­ar­játn­ing. Hulda Elsa Björg­vins­dóttir er yfir­maður ákæru­sviðs­ins.

Lögregla og rík­is­sak­sókn­ari töldu ekki til­efni til að rann­saka hvort nauðgun hefði átt sér stað þegar maður þröngvaði lim sínum í enda­þarm 17 ára stúlku meðan hún svaf. Maðurinn við­ur­kenndi verkn­að­inn þegar hann var yfir­heyrður af lög­reglu vegna ann­ars máls og tók fram að hann hefði vitað að stúlkan, þá kærasta hans, væri mót­fallin enda­þarms­mökum. 

Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hóf ekki rann­sókn, meint brot var ekki skráð í mála­skrá og stúlkunni ekki skip­aður rétt­ar­gæslu­maður. Kvaðst mað­ur­inn sjálfur hafa verið sof­andi þegar hann fram­kvæmdi verkn­að­inn og var því ekki talið að hann hefði verið að játa ásetn­ings­brot.

Lög­reglan full­yrðir í bréfi að hátt­semin sem mað­ur­inn lýsti geti ekki talist nauðgun eða kyn­ferð­is­brot. Hefur nú rík­is­sak­sókn­ari kom­ist að sömu nið­ur­stöðu en emb­ættið telur að ekki sé til­efni til að ætla annað en að fylli­lega lög­mæt sjón­ar­mið hafi búið að baki ákvörðun lög­reglu um að rann­saka ekki málið. Samkvæmt nið­ur­stöðu emb­ætt­is­ins frá 11. júní 2019 verður „ekki […] séð að sak­born­ing­ur­inn hafi með fram­an­greindum fram­burði sínum verið að við­ur­kenna nauðgun eða lýsa ásetn­ings­verki“. 

Um er að ræða föð­ur­inn í svoköll­uðu Hafn­ar­fjarð­ar­máli sem komst í hámæli í fyrra eftir að Stundin fjall­aði um og birti sam­tíma­gögn sem sýndu hvernig Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, sem nú er full­trúi Íslands og Norð­ur­land­anna í barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna, hafði beitt sér fyrir því að dætur manns­ins yrðu látnar umgang­ast hann og föð­ur­fjöl­skyld­una, þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um að fað­ir­inn hefði brotið gegn þeim.

Kærði atvikið þegar upplýsingarnar komu fram

Frá­sögnin af verkn­að­inum gagn­vart móð­ur­inni kom fram í skýrslu­töku þann 5. febr­úar 2015 þegar lög­regla rann­sak­aði meint brot gegn stúlk­unum vegna til­kynn­ingar frá barna­vernd­ar­nefnd.

Í yfir­heyrsl­unni ræddi mað­ur­inn um sam­bands­slit sín og móð­ur­innar og rakti þau til atviks þar sem hún hefði talið hann brjóta gegn sér. Við­ur­kenndi mað­ur­inn að hafa lagst ofan á móð­ur­ina og haft „enda­þarms­mök“ við hana meðan hún svaf og tók fram að þetta væri „eitt­hvað sem ég veit að hún hefur ekki áhuga á“.

Þetta var skráð með skýrum hætti í yfir­heyrslu­skýrslu. Lög­reglan opn­aði hins vegar ekki rann­sókn á mál­inu og til­kynnti kon­unni ekki um fram­burð manns­ins. Þannig fékk hún ekki vit­neskju um „játn­ing­una“ fyrr en löngu síðar, í fyrra þegar henni voru kynnt lög­reglu­gögn um mál dætra sinna og rann­sókn­ina á meintum kyn­ferð­is­brotum gegn þeim.

Konan kærði þá meint kyn­ferð­is­brot til lög­reglu en sam­hliða voru starfs­menn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæðnu kærðir fyrir að hafa haldið upp­lýs­ing­unum um meinta nauðgun leyndum og látið undir höfuð leggj­ast að rann­saka málið. Hér­aðs­sak­sókn­ari framsendi rík­is­sak­sókn­ara þann hluta kærunnar er varð­aði hið meinta kyn­ferð­is­brot gegn kon­unni og fól rík­is­sak­sókn­ari lög­regl­unni á Suð­ur­landi þann 12. nóv­em­ber 2018 að fara með rann­sókn þess hluta kæru­efn­is­ins. Þar er málið enn til með­ferðar.

Verknaðinum lýst í lokaskýrslu lögreglu

Í kærunni er rakið að mað­ur­inn hafi „við­ur­kennt í yfir­heyrslu hjá lög­reglu 5. febr­úar 2015 að hafa nauðgað“ henni. Frá­sögnin af atburð­inum sé afdrátt­ar­laus og ekki ástæða til að draga hana í efa. „Er kærð sú hátt­semi starfs­manna emb­ætt­is­ins að skrá ekki meint brot í mála­skrá lög­reglu, hefja ekki rann­sókn á meintu broti og til­nefna umbjóð­anda mínum ekki rétt­ar­gæslu­mann í til­efni af þessum upp­lýs­ingum“, segir í kærunni. 

„Játaði [mað­ur­inn] að hafa haft enda­þarms­mök við umbjóð­anda minn á meðan hún var sof­andi en að sögn [hans] var það „eitt­hvað sem ég veit að hún hefur ekki áhuga á“ eins og segir í skýrsl­unni.“ […]  Það eru mikil ólík­indi fyrir því að játn­ing [manns­ins] á nauðgun, sem fram kom í yfir­heyrslu 15. febr­úar 2015 hafi farið fram hjá tveimur reyndum rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum enda var hann tví­spurður með nokkru

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár