BSRB: Fráleitt að einkavæða Íslandspóst

Stétta­fé­lagið mót­mælir hug­myndum Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra um einka­væð­ingu póst­þjón­ust­unnar og segir slíka einka­væð­ingu hafa gef­ist illa í Evrópu.

BSRB: Fráleitt að einkavæða Íslandspóst

BSRB leggst ein­dregið gegn hug­myndum Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra um að einka­væða Íslands­póst. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BSRB og bréfi sem sam­bandið hefur sent ráð­herra. Haft var eftir Bjarna í Frétta­blað­inu í morgun að til skoð­unar væri að selja rekstur Íslands­pósts þegar búið væri að koma lagaum­gjörð­inni í betra horf. 

„Póstþjónusta er samfélags­þjónusta rétt eins og heil­brigð­is­þjónustan, löggæsla, samgöngur og fleira. Þar þarf fyrst og fremst að horfa til þess að almenn­ingi um allt land sé tryggð góð þjónusta,“ segir Magnús Már Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri BSRB, í bréfi til ráð­herra. „Slíkt er ekki hægt nema almanna­þjónustan sé í höndum hins opin­bera sem skipu­leggi, stýri og fjármagni hana með jafnan rétt almenn­ings að leið­ar­ljósi.“

Að mati BSRB hefur vandi Íslands­pósts ekki verið eign­ar­hald félags­ins heldur skortur á stefnu­mótun. „Nú þegar end­ur­skipu­lagn­ing fyr­ir­tæk­is­ins er framundan er frá­leitt að mati banda­lags­ins að ætla sér að hefja und­ir­bún­ing að einka­væð­ingu Íslands­pósts. Einka­væð­ing póst­þjón­ustu í Evrópu hefur ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt með bættri þjón­ustu og minni kostn­aði. Þvert á móti hefur hún haft í för með sér verri þjón­ustu, sér í lagi í dreif­býli, hækk­andi gjald­skrár og slæm áhrif á vinnu­skil­yrði og rétt­indi starfs­fólks. Í öðrum heims­hlutum hefur verið snúið af braut einka­væð­ingar, til dæmis í Argent­ínu þar sem reynslan af einka­væð­ingu póst­þjón­ust­unnar var hörmu­leg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Sósíalistar vilja skera niður ofurlaun ráðamanna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“
Innlent

Sós­í­alistar vilja skera niður ofur­laun ráða­manna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn stingur upp á að ríkið hag­ræði með því að skera niður „ofur­laun og sporslur“ til ráða­manna. Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands var að senda frá sér ályktun um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Þar segir að ein mik­il­væg­asta hag­ræð­ingin sem hægt er að ráð­ast í sé að „skera niður ofur­laun og sporslur til ráða­manna sem eiga ekki að vera í allt öðru­vísi efna­hags­um­hverfi en...
Ragnar skýtur fast á bankana: „Þetta er allt að koma segir fjármálaráðherra!!“
Innlent

Ragnar skýtur fast á bank­ana: „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!!“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son skýtur föstum skotum á fjár­mála­ráð­herra og bank­ana í ljósi vaxta­hækk­ana Arion banka. Verka­lýðs­for­ing­inn Ragnar Þór Ing­ólfs­son er ekki ánægður með Arion banka frekar en margir aðrir eftir að bank­inn til­kynnti um 15 pró­sent vaxta­hækkun. „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!! Bank­arnir eru í óða önn að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins, í að ná niður...
Stéttarfélög boða til mótmæla á Austurvelli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu“
Innlent

Stétt­ar­fé­lög boða til mót­mæla á Aust­ur­velli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efna­hags­á­stand­inu“

Nokkur stétt­ar­fé­lög hafa boðað til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun, þriðju­dag­inn 10. sept­em­ber klukkan 16:00. Alþýðu­sam­band Íslands, BSRB og Kenn­ara­sam­band Íslands boða til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun en ætl­unin er að mót­mæla skeyt­inga­leysi stjórn­valda gagn­vart hárri verð­bólgu og vöxtum. „Þrálát verð­bólga og háir vextir hafa haft alvar­legar afleið­ingar á fjölda heim­ila lands­ins vegna síhækk­andi verðs á nauð­synja­vörum og hús­næð­is­kostn­aðar....
Björn lætur ráðherra heyra það: „Heimskulegustu ummæli ársins 2024“
Menning

Björn lætur ráð­herra heyra það: „Heimsku­leg­ustu ummæli árs­ins 2024“

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og fyrrum rit­stjóri frá Grinda­vík segir ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fjár­mála­ráð­herra sem hann lét falla á dög­unum, örugg­lega flokk­ast með „heimsku­leg­ustu ummælum árs­ins 2024“. Ummæli Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kast­ljósi á dög­unum, féll væg­ast sagt í kramið hjá mörgum Íslend­ingum en þar sagði hann það vera í erfða­efni Íslend­inga að sætta sig við...
Segir ríkisvaldið líta á almenning sem blóðmerar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auðvaldsins“
InnlentEfnahagsmál

Segir rík­is­valdið líta á almenn­ing sem blóð­merar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auð­valds­ins“

Gunnar Smári Egilsson segir að rík­is­valdið líti á almenn­ing sem blóð­merar. Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson er síður en svo sáttur við óbreytta stýri­vexti Seðla­bank­ans sem til­kynntir voru í morgun. Segir hann í harð­orðri Facebook-færslu að í fram­tíð­inni verði hugs­an­lega settir upp „gam­anóp­eru“um fundi pen­inga­nefnd Seðla­bank­ans en þangað til sé þetta ekki fyndið. „Kannski verða þessi fundir settir upp sem gam­anóp­erur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár