Eftirlitsmyndavélar í borginni „fylgjast með öllum, alls staðar, öllum stundum“

Katrín Atla­dóttir borg­ar­full­trúi varar við útbreiðslu eft­ir­lits­mynda­véla í Reykja­vík. Íbúar séu í beinni útsend­ingu á net­inu allan sól­ar­hring­inn.

Eftirlitsmyndavélar í borginni „fylgjast með öllum, alls staðar, öllum stundum“

Katrín Atla­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, varar við útbreiðslu eft­ir­lits­mynda­véla í grein í Frétta­blað­inu í dag. „Talsmenn eft­ir­lits­sam­fé­lags segja oft að þeir hafi ekk­ert að fela, eft­ir­litið sé til þess að góma lög­brjóta,“ skrifar Katrín. „En við megum ekki byggja upp sam­fé­lag þar sem allir eru sjálf­krafa tor­tryggðir meðan lang­flestir fara að lögum og reglum. Áður var við­kvæðið að fylgj­ast með þeim sem gerðu eitt­hvað af sér. Nú virð­ist það vera að fylgj­ast með öllum, alls staðar, öllum stundum.“

Ástæða skrifa Katrínar er nýleg umræða á Twitter um eft­ir­lits­mynda­vél við Ein­ars­nes í Skerja­firði, sem merkt er merkt umhverfis- og skipu­lags­sviði Reykja­víkur. „Við nán­ari eft­ir­grennslan kom í ljós að myndefn­inu er varpað, að ósk borg­ar­innar, í beinni útsend­ingu á vef­síðu Vega­gerð­ar­innar,“ skrifar Katrín. „Nú veit ég ekki hvort íbúar við göt­una, eða aðrir veg­far­endur, eru sáttir við að vera í beinni útsend­ingu á net­inu allan sól­ar­hring­inn, en málið vakti furðu mína. Við nán­ari eft­ir­grennslan komst ég að því að umhverfis- og skipu­lags­svið er með átta eft­ir­lits­mynda­vélar víðs­vegar í borg­ar­land­inu. Til­gang­ur­inn er sagður vera sá að fylgj­ast með færð vega!“

Katrín bætir því við að lög­reglan sé einnig með tugi mynda­véla í borg­inni og vilji tvö­falda fjöld­ann. „Áður fyrr var þessu eft­ir­liti yfir­leitt stýrt af fólki. Nú er því stýrt af tölvum sem hafa mikla vinnslu­getu og geta unnið úr öllum upp­lýs­ingum jafn­óðum. And­lits­grein­ing getur greint ein­stak­linga á mynd á auga­bragði, greint kyn, hvort við­kom­andi er með tösku og margt fleira. Eftir því sem eft­ir­lits­mynda­vélum er fjölgað er auð­veld­ara fyrir stjórn­völd (eða Vega­gerð­ina í til­felli Ein­ars­ness) að fylgj­ast með ferðum fólks, án nokk­urs lög­mæts til­efnis.“

„Þegar tækn­inni fleygir fram þarf að doka við og stíga var­lega til jarðar“

Bendir Katrín loks á að stjórn­völd í Kína hafi víða sett upp eft­ir­lits­mynda­vélar í land­inu og noti þær til að fylgj­ast með fólki hvert sem það fer. „Sama á við um nokkrar borgir í Banda­ríkj­unum og þar í landi er rætt um slíkt eft­ir­lit í skólum. Félagi minn fór nýlega um LAX flug­völl­inn í Los Angeles án þess að þurfa að sýna vega­bréf, vél­arnar þekktu hann. Þegar tækn­inni fleygir fram þarf að doka við og stíga var­lega til jarðar. Þarf að fylgj­ast með færð á Ein­ars­nesi á sumrin eða yfir­leitt?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár