Með stúdíó í bílskúrnum

Jar­þrúður Karls­dóttir er tón­skáld, kundal­ini yoga- og hug­leiðslu­kenn­ari og heil­ari sem býr í fal­legu húsi við Hring­braut í Vest­ur­bænum, þar sem hún getur ræktað blóm og mat­jurtir. Í bíl­skúrnum er hún með stúdíó þar sem hún vinnur að kvik­mynda­tón­list fyrir mynd­ina Atomy.

Með stúdíó í bílskúrnum

Jar­þrúður Karls­dóttir er tón­skáld, kundal­ini yoga- og hug­leiðslu­kenn­ari og heil­ari. Hún kennir jóga í Amara jóga­stöð­inni í Hafn­ar­firði sem og heima hjá sér en einnig hyggst hún kenna jóga og hug­leiðslu utandyra en hægt er að finna upp­lýs­ingar um þá tíma á heima­síðu hennar, Pop-up Yoga.

Jara, eins og hún er oft­ast kölluð, lærði kundal­ini jóga­fræðin í Ra Ma Institute of Yogic Science and Technology á Mallorca en hún hefur lengi verið hug­fangin af fræðum af svip­uðum toga. Síðustu tutt­ugu ár hefur hún stúd­erað vest­ræna og aust­ræna heim­speki sem og dul­speki.

Jara hefur síð­ast­liðin átta ár búið í fal­legu húsi við Hring­braut í Vest­ur­bænum. „Það sem hreif mig helst við húsið var hvað það var ódýrt og ég hef gert það heil­mikið upp. Þetta er pass­leg stærð fyrir okkur, mið­svæðis og stutt í skól­ann fyrir yngri strák­inn minn. Mér finnst ynd­is­legt að hafa garð þar sem ég get ræktað blóm og mat­jurtir, svo fylgdi líka bíl­skúr með íbúð­inni sem ég nota sem tón­list­ar­stúdíó.“

Jara vinnur einmitt að kvik­mynda­tón­list þessa dag­ana fyrir mynd­ina Atomy eftir Loga Hilm­ars­son. Hún fjallar um Brand sem hefur verið lamaður í hjóla­stól í nokkur ár og ferð hans til Nepal til að hitta heil­ara sem hefur tek­ist að fá hann til að standa í fæt­urna í smá tíma og sitja upp­réttur óstuddur. Að sögn Jöru mun heil­ar­inn vinna með Brandi næstu mán­uði og með­ferðin lofar góðu, það magn­aða sé að vest­ræn lækna­vís­indi hafa ekki náð að hjálpa honum.

Stundin fékk Jöru til að deila með les­endum nokkrum af hennar upp­á­halds­hlutum, upp­skrift sem henni er kær en einnig deilir hún hug­leiðslu sem hún hvetur les­endur til að prófa.

Gjöf frá kærast­anumGongið er gjöf frá Þóri, kærasta Jöru, sem var sér­valið fyrir hana úti í Nepal af vinum hennar sem voru á ferð að taka upp áður­nefnda heim­ild­ar­mynd. „Þetta er dásam­legt hljóð­færi og ég nota það til þess að setja fólk í gong­bað og fram­kvæma tón­heilun á fólki. Gongið er alveg magnað því þegar er spilað á gong þá fer hugur fólks í pásu á meðan en þá fær lík­am­inn tæki­færi til að laga það sem þarf að laga.“
Gyðjan TaraStytta af gyðj­unni Töru sem Jara fann í bænum Gla­ston­bury í ferð sem hún fór þangað á síð­asta afmæl­is­degi sínum. „Þessi bær er virki­lega áhuga­verður og aðal­gatan minnir á Ská­stræti í Harry Potter, þarna er til dæmis hægt að kaupa galdra­stafi, krist­alla, efni í töfra­seyði og galdra­skikkjur en ekki venju­leg föt. Ég valdi mér þessa styttu því mér var gefið and­lega nafnið Gian Tara. Gian þýðir viska og Tara þýðir bæði stjarna og tíbeska gyðjan Tara. Þetta er stytta af hvítu Töru þótt hún sé svört, en hvíta Tara er gyðja sam­úðar, heil­unar og lang­lífis. Tara er mik­il­væg í búdd­isma og birt­ist sem kven­kyns Bodd­isattva í annarri aðal­grein búdd­isma.“
Glimmerg­ítar„Gull-glimmer raf­magns­gít­ar­inn var líka gjöf frá kærast­anum og mig var lengi búið að dreyma um góðan glimmer-raf­magns­gítar. Þessi hljómar mjög vel en aðal­málið er nátt­úr­lega útlitið.“
Hengi­stóll­inn„Hengistól­inn minn fékk ég gef­ins þegar yngri strák­ur­inn minn var nokk­urra mán­aða og ég naut þess að sitja þar með hann í fang­inu. Hann er ótrú­lega þægi­legur, góður til að sitja og lesa í og þegar gestir koma í heim­sókn þá vilja allir sitja í honum.“
Upp­á­halds­bókin„Þessi mynd hefur fylgt mér í tugi ára en æsku­vin­kona mín, sú sem á hörpuna, gaf mér hana þegar við vorum litlar og hún var nýkomin heim frá ferð til Japan en mamma hennar var japönsk. Við hlið­ina á mynd­inni er upp­á­halds­bókin mín, sem hlutur, The Secret Life of Plants. Hún er gjöf frá vini mínum sem fann hana og varð strax hugsað til mín. Textinn og mynd­irnar í henni eru svo fal­leg en bókin inni­heldur alls kyns rann­sóknir um leyni­legt líf plantna. Til dæmis að ef maður hótar plöntu að maður ætli að kveikja í henni þá sýnir hún mæl­an­leg ótta­við­brögð og að plöntur eru hrifnar af klass­ískri tón­list og noise tón­list en þola ekki þung­arokk.“
Skilur ekki tíma„Þetta eru nokkrar af bók­unum mínum um tíma. Tíma í með­förum eðl­is­fræð­innar og í bók­menntum. Tími er ein aðal þrá­hyggjan mín af því að ég skil hann alls ekki. Ég held til dæmis að allt taki fimm til 10 mín­útur, sem skapar mér alls konar vanda­mál. Ég er að vinna að verki um tím­ann sem verður kannski að veru­leika á næsta ári, já eða eftir fimm til tíu mín­útur.“

Jara á Instagram: https://www.instagram.com/jaragiantara/
Jara á Facebook: https://www.facebook.com/giantara11/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár