Babb í bátnum

Nú er Bragi Páll Sig­urð­ars­son, ásamt áhöfn, rétt að kom­ast út úr Mið­jarð­ar­haf­inu á sigl­ingu sinni frá Sikiley til Íslands. Skútan Valkyrja virt­ist vera í eigu mafíósa áður en Bragi fékk hana í hend­urnar sem leiddi til mik­illa trafala og tafa. Hefði allt farið eftir áætlun ætti Valkyrja að koma í höfn í Írlandi seinna í dag en skútan þús­und mílum á eftir áætlun.

Babb í bátnum
Brattir í upp­hafi ferðar Bragi Páll Sig­ur­ar­son sá við­skipta­tæki­færi í að kaupa sér skútu fyrir ferða­menn og keypti því skútu af manni nokkrum frá Sikiley. Bragi smal­aði ólík­leg­ustu mönnum saman til að sigla skút­unni frá Sikiley til Íslands. Með í för voru Almar Atlason í kass­anum og Frank Arthur Blöndahl Cassata. Á mynd­ina vantar Sigurð Pál Jónsson, pabbi Braga og alþing­is­mann, sem einnig er með í för. Mynd: Úr einkasafni

Bragi Páll Sig­urð­ar­son sá við­skipta­tæki­færi í að kaupa sér skútu fyrir ferða­menn og keypti því skútu af manni nokkrum frá Sikiley. Bragi smal­aði ólík­leg­ustu mönnum saman til að sigla skút­unni frá Sikiley til Íslands. Tveir hafa aldrei komið nálægt sjó eða sigl­ingum, en í för eru þeir Almar Atlason í kass­anum, Frank Arthur Blöndahl Cassata og Sigurður Páll Jónsson, pabbi Braga og alþing­is­maður. 

Sigl­ingin er hálfnuð og skútan, sem sam­kvæmt áætlun hefði átt að vera að sigla í höfn á Írlandi um þessar mundir, er rétt svo komin út úr Mið­jarð­ar­haf­inu og þar með þús­und mílum á eftir áætlun. Sigurður Páll er farin til Íslands að sinna þing­störfum og áhöfnin upp­lifir stemn­ing­una með mis­mun­andi hætti. 

Almar S. Atlason

Blaða­maður: Hvernig hefur þú það?

Almar: Ég hef það ágætt.

Blaða­maður: Getur þú lýst fyrir mér ferða­lag­inu?

Almar: Ferða­lagið er búið að ein­kenn­ast af miklum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár