Styðja við Jónu með dansi og fjölskyldugleði

Dans- og fjöl­skyldu­há­tíðin Kátt í Kram­hús­inu verður haldin næsta sunnu­dag, með fjöl­breyttri dag­skrá fyrir full­orðna og börn. Allur ágóði af gleð­inni rennur til Jónu Elísa­betar Ottesen, stofn­anda barna­há­tíð­ar­innar Kátt á Klambra, sem slas­að­ist alvar­lega í bílslysi fyrir skömmu.

Styðja við Jónu með dansi og fjölskyldugleði
Jóna á Kátt á Klambra Jóna Elísabet Ottesen er stofn­andi barna­menn­ing­ar­há­tíð­ar­innar Kátt á Klambra. Myndin var tekin á fjórðu hátíð­inni sem haldin var á Klambra­túni síð­asta sumar. Nú blása kenn­arar og stjórn­endur Kram­húss­ins til dans­há­tíð­ar­innar Kátt í Kram­hús­inu, til að styðja við end­ur­hæf­ingu Jónu eftir alvar­legt bílslys.

„Þegar svona hlutir ger­ast, þjappar þorpið sér saman. Okkur rennur blóðið til skyld­unnar þegar svona ung athafna­kona eins og Jóna er, sem er að gera svona góða hluti í líf­inu og ekki síst tengt barna­menn­ingu, lendir í svona aðstæðum. Megnið af okkar kenn­urum hefur á einn eða annan hátt unnið með Jónu og þekkjum allar til hennar góðu verka. Þetta er því sam­eig­in­legt átak Kram­húss­ins og kennar­anna, því við viljum gera okkar til að aðstoða hana við það sem framundan er,“ segir Vigdís Arna hjá Kram­hús­inu.

Það var laug­ar­dag­inn 1. júní síð­ast­lið­inn sem Jóna lenti í bílslysi í Langadal í Húna­vatns­sýslu, þegar hún var á leið til Reykja­víkur. Með henni í bílnum var Ugla dóttir hennar, sem slapp ómeidd frá slys­inu, sem þykir mikil mildi. Jóna varð hins vegar fyrir mænu­skaða og er enn á gjör­gæslu eftir slysið.

Jóna er stofn­andi barna­menn­ing­ar­há­tíð­ar­innar Kátt á Klambra sem hefur verið haldin í Reykja­vík þrjú síð­ustu sumur við góðar við­tökur barna og fjöl­skyldna þeirra. „Nafnið á við­burð­inum hjá okkur er Kátt í Kram­hús­inu, sem er auð­vitað vísun í Kátt á Klambra. Við gáfum við­burð­inum þetta nafn henni til heið­urs og að sjálf­sögðu með fullu sam­þykki fjöl­skyldu hennar,“ segir Vigdís Arna.

Að sögn Vigdísar Örnu er dag­skráin í Kram­hús­inu mjög í anda Jónu, því allir sem hana þekkja viti að hún elski að dansa og að barna­menn­ing sé henni hjart­ans mál. „Við ákváðum að hafa dag­skrána tví­skipta, hafa hana fjöl­skyldu­mið­aða ann­ars vegar og dans­djamm fyrir full­orðna hins vegar, því okkur finnst það vera í hennar anda,“ útskýrir hún.

Verið er að leggja loka­hönd á skipu­lagn­ingu dag­skrár Kátt í Kram­hús­inu. Milli klukkan 11 og 1 verður hún til­einkuð fjöl­skyldum, meðal ann­ars með jóga, latin fit­ness, afró og pilates. Á milli klukkan 16 og 18 verður svo dans­djamm, með fjöl­breyttum dönsum á borð við Broadway-, Beyoncé og 90’s dansa. Kennt verður í báðum sölum Kram­húss­ins og „hver ein­asta króna rennur óskipt til Jónu“, eins og Vigdís Arna segir.

Opnað verður fyrir skrán­ingu í kvöld. Hægt verður að fylgj­ast með á Facebook-síðu og heima­síðu Kram­húss­ins.

Margir hafa á síð­ustu dögum sett sig í sam­band við fjöl­skyldu Jónu og boð­ist til að hjálpa á einn eða annan hátt. Auk fram­taks kvenn­anna í Kram­hús­inu hafa til að mynda ljós­mynd­ar­arnir Brynjar Snær og Lilja Jóns boðið mynda­tökur, sem þau þiggja ekki greiðslur fyrir en vilja þess í stað að kúnnar þeirra styrki Jónu.

Styrkt­ar­reikn­ingur var opn­aður fyrir Jónu fljót­lega eftir slysið. Númer styrkt­ar­reikn­ings­ins er 528-14-401998 og kennitala 701111-1410.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár