Glerþakið er lægra fyrir erlendar konur

Nýr formaður Kven­réttinda­félags Íslands, Tatjana Latinovic, er með fleiri járn í eldinum en velflestir aðrir. Auk þess að stýra hinu rótgróna félagi sem Bríet Bjarnhéðins­dóttir og fleiri kjarna­konur stofnuðu fyrir 112 árum er Tatiana yfirmaður hugverka­sviðs Össurar, situr í Innflytjenda­ráði og hvílir hugann með því að þýða íslenskar bókmennir yfir á serbnesku og króatísku.

Fetar í fótspor Bríetar
Fetar í fót­spor Bríetar Tatjana Latinovic er fyrsta konan af erlendum upp­runa til að gegna for­mennsku í Kven­rétt­inda­fé­lagi Íslands. Mynd: Davíð Þór

Tatjana Latinovic er fyrsti formaðurinn af erlendum uppruna í 112 ára sögu Kven­réttinda­félags Íslands. Þó að hún sé nýtekin við formennsku er hún langt frá því að vera að stíga sín fyrstu skref í barátt­unni fyrir bættum mann­réttindum, sem hún hefur sinnt drjúgan hluta lífs síns en markvisst frá því árið 2003, þegar hún var á meðal stofnenda Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Frá árinu 2016 hefur hún verið vara­formaður í stjórn Kven­réttinda­félagsins. Tatjönu þykir það rökrétt framhald að hún, með sína reynslu, skuli vera sest í formanns­stól Kven­réttinda­félagsins. Þá þykir henni vænt um að vera fyrsta konan af erlendum uppruna til að verma hann. „Þegar við ákváðum að stofna Samtök kvenna af erlendum uppruna þótti okkur rétt að hafa sérsamtök fyrir okkur, til að gefa erlendum konum enn meiri rödd, þrátt fyrir að kvenna­hreyfingin hafi tekið okkur opnum örmum. Eftir að hafa starfað á þeim vettvangi fannst …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár