Persónuvernd hafnar kröfu Miðflokksmanna um að Bára verði sektuð – Upptakan ólögleg en ekki sýnt fram á „samverknað“

Persónu­vernd lítur sérstak­lega til þess í úrskurði sínum um Klausturs­málið að samræðurnar sem Bára Halldórs­dóttir tók upp hafa orðið „tilefni mikillar umræðu í samfélaginu um háttsemi þjóð­kjörinna fulltrúa“.

Stjórn Persónu­verndar fellst ekki á kröfu þingmanna Miðflokksins um að Bára Halldórs­dóttir verði sektuð vegna hljóð­ritunar hennar á samskiptum þeirra sem fram fóru á veitinga­staðnum Klaustri. Hins vegar telst upptakan ólögleg samkvæmt persónu­verndar­lögum og ber Báru að eyða henni. 

Þetta kemur fram í úrskurði Persónu­verndar vegna Klausturs­málsins sem kveðinn var upp í dag.

Stundin hefur úrskurðinn undir höndum. Í niður­stöðu hans er litið sérstak­lega til þess að rannsókn Persónu­verndar leiddi ekki í ljós neinn „samverknað“, þ.e. samsæri á borð við það sem Miðflokks­menn og lögmaður þeirra höfðu sett fram kenningar um. Þá er bent á að samræðurnar sem Bára tók upp hafi orðið „tilefni mikillar umræðu í samfélaginu um háttsemi þjóð­kjörinna fulltrúa“. 

Með hliðsjón af tilgangi hljóð­ritunarinnar og kringum­stæðum málsins telur Persónu­vernd ekki efni til að leggja sekt á Báru. Engu að síður ber Báru að eyða upptökunni og senda Persónu­vernd stað­festingu á að það hafi verið gert eigi síðar en 5. júní næst­komandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár