Persónuvernd hafnar kröfu Miðflokksmanna um að Bára verði sektuð – Upptakan ólögleg en ekki sýnt fram á „samverknað“

Per­sónu­vernd lítur sér­stak­lega til þess í úrskurði sínum um Klaust­urs­málið að sam­ræð­urnar sem Bára Hall­dórs­dóttir tók upp hafa orðið „til­efni mik­illar umræðu í sam­fé­lag­inu um hátt­semi þjóð­kjör­inna full­trúa“.

Stjórn Per­sónu­verndar fellst ekki á kröfu þing­manna Mið­flokks­ins um að Bára Hall­dórs­dóttir verði sektuð vegna hljóð­rit­unar hennar á sam­skiptum þeirra sem fram fóru á veit­inga­staðnum Klaustri. Hins vegar telst upp­takan ólög­leg sam­kvæmt per­sónu­vernd­ar­lögum og ber Báru að eyða henni. 

Þetta kemur fram í úrskurði Per­sónu­verndar vegna Klaust­urs­máls­ins sem kveð­inn var upp í dag.

Stundin hefur úrskurð­inn undir höndum. Í nið­ur­stöðu hans er litið sér­stak­lega til þess að rann­sókn Per­sónu­verndar leiddi ekki í ljós neinn „sam­verknað“, þ.e. sam­særi á borð við það sem Mið­flokks­menn og lög­maður þeirra höfðu sett fram kenn­ingar um. Þá er bent á að sam­ræð­urnar sem Bára tók upp hafi orðið „til­efni mik­illar umræðu í sam­fé­lag­inu um hátt­semi þjóð­kjör­inna full­trúa“. 

Með hlið­sjón af til­gangi hljóð­rit­un­ar­innar og kring­um­stæðum máls­ins telur Per­sónu­vernd ekki efni til að leggja sekt á Báru. Engu að síður ber Báru að eyða upp­tök­unni og senda Per­sónu­vernd stað­fest­ingu á að það hafi verið gert eigi síðar en 5. júní næst­kom­andi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár