Kýr Jórt­ur­dýr losa metan­gas í melt­ing­ar­ferli sínu, en metan er ein skæð­asta teg­und gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Mynd: Shutterstock

Stjórnvöld styrkja vöxt nautgriparæktar þrátt fyrir metanlosun

Aukin fram­leiðsla nauta­kjöts er mark­mið í búvöru­samn­ingum, en met­an­losun jórt­ur­dýra veldur 10 pró­sent þess útblást­urs sem stjórn­völd eru ábyrg fyrir. Aukin fram­leiðsla fer þvert gegn aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum þar sem miðað er við óbreyttan fjölda búfén­aðar.

Loft­teg­undir sem jórt­ur­dýr gefa frá sér eru stærsti hluti útblást­urs gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá land­bún­aði á Íslandi. Markmið búvöru­samn­inga er að auka fram­leiðslu nauta­kjöts og veita stjórn­völd fjár­stuðn­ing til þess, þvert á aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum, þar sem miðað er við óbreyttan fjölda búfén­aðar.

Stuðn­ingur rík­is­ins við nauta­kjöts­fram­leiðslu verður á bil­inu 98 til 186 millj­ónir króna á ári til árs­ins 2026 sam­kvæmt búvöru­samn­ingi um naut­gripa­rækt. Ekki er minnst á áhrif búfén­aðar á lofts­lags­breyt­ingar í samn­ingnum, en end­ur­skoðun hans skal fara fram í ár. Iðra­gerjun, það ferli sem orsakar losun metangass úr melt­ing­ar­ferli jórt­ur­dýra, veldur 10 pró­sent af allri losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem íslensk stjórn­völd eru ábyrg fyrir. Helming los­unar vegna íslensks land­bún­aðar má rekja til iðra­gerj­unar.

Með búvöru­samn­ingnum er hvatt til auk­innar og bættrar fram­leiðslu nauta­kjöts á Íslandi. Á vef Lands­sam­bands kúa­bænda segir að auka þurfi fram­leiðslu á íslensku nauta­kjöti um fjórð­ung til að sinna inn­an­lands­mark­aði. „Með samn­ingnum er verið að efla …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár