Forsætisráðherra segir öfgahægrið grafa markvisst undan yfirráðum kvenna yfir eigin líkama

„Líkamar kvenna eru dregnir inn í póli­tíska umræðu með hætti sem ætti að heyra sög­unni til,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir í erindi sem hún flutti á kynja­fræði­ráð­stefnu í dag.

Forsætisráðherra segir öfgahægrið grafa markvisst undan yfirráðum kvenna yfir eigin líkama

„Líkamar kvenna eru dregnir inn í póli­tíska umræðu með hætti sem ætti að heyra sög­unni til og grafið er undan fyrri sigrum í bar­áttu kvenna fyrir yfir­ráðum yfir sínum eigin lík­ama.“ Þetta er á meðal þess sem fram kom í ræðu Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við opnun alþjóð­legrar ráð­stefnu um kynja­fræði í dag. 

„Bandalag öfga hægri flokka hefur valið sér marga óvini. Ráðist er gegn inn­flytj­endum og minni­hluta­hópum og þeir gerðir að blóra­bögglum fyrir allt sem miður hefur farið í tengslum við hnatt­væð­ingu og nýfrjáls­hyggju und­an­far­inna ára­tuga. Rétt­indum hinsegin fólks er víða ógnað, stundum í þeim til­gangi einum að ná til trú­aðra kjós­enda. Annað skot­mark eru femín­ismi og kynja­fræði, og kven­frelsi almennt,“ sagði Katrín.

Hún lagði áherslu á að barist yrði gegn þessum öflum af öllum mætti og almenn­ingi boðið upp á aðra val­kosti. Þar væri alþjóð­leg sam­vinna eina leiðin til að taka á stærstu áskor­unum sam­tím­ans, svo sem lofts­lags­vand­anum og vax­andi ójöfn­uði. 

Fjallað er um málið á vef stjórn­ar­ráðs­ins en ráð­stefnan er haldin af nor­ræna tíma­rit­inu NORA, ber yfir­skrift­ina Border Regimes, Ter­ritor­ial Discourses and Feminist Politics og var skipu­lögð af RIKK, rann­sókn­ar­stofnun í jafn­rétt­is­fræðum, Jafn­rétt­is­skóla Háskóla Sam­ein­uðu þjóð­anna og EDDU, rann­sókna­setri við Háskóla Íslands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár