„Fólk sem faldi peninga í Panama, laug ítrekað að þjóðinni, mætti ekki til vinnu í heilt ár en þáði samt laun“

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­kona Fram­sókn­ar­flokks­ins, fer hörðum orðum um þing­menn Mið­flokks­ins og segir þá skít­hrædda við erlent sam­starf.

„Fólk sem faldi peninga í Panama, laug ítrekað að þjóðinni, mætti ekki til vinnu í heilt ár en þáði samt laun“

Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, gagn­rýnir Mið­flokk­inn harð­lega á Facebook og fer ófögrum orðum um Sigmund Davíð Gunn­laugs­son, sinn fyrr­ver­andi for­mann.

Segir Silja tíma­bært að Mið­flokks­menn komi hreint fram og við­ur­kenni að þeir vilji „hætta öllu sam­starfi við hættu­lega útlend­inga - hætta í EFTA og segja sig frá EES samn­ingnum“. Þetta sé það sem mál­flutn­ingur þeirra og hama­gangur gegn þriðja orku­pakk­anum beri með sér. 

„Sorglega fyndið, og eig­in­lega kald­hæðn­is­legt, að flokkur sem telur sig fylgja sterkum, kjark­miklum for­ingja, sé svona skít­hræddur við erlent sam­starf. Að trúa því að menn bíði í röðum að hrifsa eitt­hvað af okkur. Að engu sé treystandi, síst af öllu sam­starfs­þjóðum okkar til ára­tuga,“ skrifar hún.

„Kald­hæðn­is­legt að flokkur sem telur sig
fylgja sterkum, kjark­miklum for­ingja sé svona skít­hræddur við erlent sam­starf“

Færsla Silju er vitn­is­burður um þá gjá sem hefur mynd­ast milli Fram­sókn­ar­þing­manna og fyrr­ver­andi for­ystu­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins, þeirra Sig­mundar Davíðs og Gunnars Braga Sveins­sonar sem klufu sig út úr Framsókn og stofn­uðu nýjan flokk árið 2017, Mið­flokk­inn sem nú er stærsti stjórn­ar­and­stöðu-flokk­ur­inn á Alþingi þökk sé liðs­auk­anum sem barst í kjöl­far Klaust­urs­máls­ins. 

Sem kunn­ugt er hefur Mið­flokk­ur­inn beitt sér af mik­illi hörku gegn inn­leið­ingu þriðja orku­pakk­ans í íslenskan rétt og haldið því fram að ESB-gerð­irnar ógni full­veldi Íslands.

„Mið­flokk­ur­inn er eini flokk­ur­inn sem talar með þessum hætti í orku­pakka­mál­inu,“ skrifar Silja. „Í þeim þing­flokki er fólk sem faldi pen­inga í Panama, laug ítrekað að þjóð­inni, fólk sem mætti ekki til vinnu í heilt ár og þáði samt laun fyrir og fólk sem afhjúpaði mann­fyr­ir­litn­ingu sína á Klaust­ur­bar fyrir stuttu síðan. Segir það ekki eitt­hvað um trú­verð­leika þeirra mál­flutn­ings?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
5
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár