Hrun í komu ferðamanna í apríl

Nær fimmt­ungi færri erlendir ferða­menn komu til lands­ins í apríl en í sama mán­uði í fyrra. Hag­stofan hefur aldrei mælt aðra eins fækkun á milli ára.

Hrun í komu ferðamanna í apríl

Í apríl komu 106 þús­und erlendir ferða­menn til Íslands, en þeir voru 131 þús­und í sama mán­uði í fyrra. Fækkunin nemur 19 pró­sentum og er þetta mesta fækkun á sam­bæri­legu tíma­bili í tvo ára­tugi frá því Hag­stofan hóf mæl­ingar.

Sam­bæri­leg fækkun á milli ára varð í maí 2010 þegar erlendum far­þegum fækk­aði um rúm 18 pró­sent. Í apríl hafði þá verið eld­gos í Eyja­fjalla­jökli sem lam­aði flug­um­ferð í Evrópu og varð til þess að um 95 þús­und flug­ferðum í Evrópu var aflýst. Þá fækk­aði erlendum far­þegum þó ein­ungis um 6.300.

Umferð í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl dróst einnig saman í apríl. Heild­ar­far­þega­flutn­ingar dróg­ust saman um 27 pró­sent á milli ára, voru tæp­lega 475 þús­und í apríl, en 650 þús­und í sama mán­uði árið 2018. Heild­ar­flug­hreyf­ingar, flug­tök og lend­ingar, voru tæp­lega 7 þús­und í apríl, en 9.300 í apríl í fyrra, og dróg­ust þannig saman um fjórð­ung.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár