Vill „vísa Ásmundi, Brynjari og Ingu út úr eggjastokkum íslenskra kvenna“

Heitar umræður eiga sér stað um þung­un­ar­rof og frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra þessa dag­ana. Fyrr­ver­andi sókn­ar­prestur segir álita­efnið snú­ast um hvort konur séu frjálsar eða „ánauð­ugir hýslar fyrir fóstur“. Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra hvetur til þess að mál­inu verði frestað til næsta þings.

Vill „vísa Ásmundi, Brynjari og Ingu út úr eggjastokkum íslenskra kvenna“

Sigríður Guð­mars­dóttir, fyrr­ver­andi sókn­ar­prestur í Graf­ar­holts­kirkju, segir að þung­un­ar­rofsum­ræðan snú­ist um hvort líta skuli á konur sem full­veðja ein­stak­linga sem ráði yfir eigin lík­ama og fram­tíð eða „ánauð­uga hýsla fyrir fóstur“. Ákvörðun um þung­un­ar­rof verði að vera á ábyrgð hinnar frjálsu konu en ekki ann­arra.

„Kannski er það mesta undur heims­ins hversu margar konur leggja sjálf­vilj­ugar á lík­ama sína þá dýru lífs­ins gjöf að ganga með og fæða börn. Þökkum þá gjöf, þvingum eigi. Og vill ein­hver vera svo væn að vísa Ásmundi, Brynjari og Ingu út úr eggja­stokkum íslenskra kvenna,“ skrifar hún á Facebook.

Heitar umræður eiga sér stað um þung­un­ar­rof og frum­varp heil­brigð­is­ráð­herra um málið þessa dag­ana. 

Eins og Stundin fjall­aði um í gær vilja þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins þrengja veru­lega rétt­inn til að gang­ast undir þung­un­ar­rof frá því sem nú er.

Inga Sæland hefur sagt frum­varpið snú­ast um „að 22 vikna ófull­burða barn verði drepið í móð­ur­kviði“, en sá mál­flutn­ingur lagð­ist afar illa í þing­heim.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, leggur áherslu á að lífið sé heil­agt. „Fremur en að tala um að rýmka rétt til fóst­ur­eyð­inga væri okkur nær að finna leiðir til að hjálpa verð­andi mæðrum í vanda að eign­ast börn sín,“ segir hann í nefnd­ar­á­liti um málið og vitnar í orð Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups um að lífið sé „náð­ar­gjöf sem Guð gefur og Guð tekur“.

Páll Magn­ús­son, þing­maður sama flokks, hefur lagt til að óskil­yrt heim­ild til þung­un­ar­rofs nái til 20 vikna en ekki 22 vikna. Með því yrði rétt­ur­inn til að rjúfa þungun vegna fóst­ur­galla þrengdur um tvær vikur frá því sem nú er en rýmk­aður í til­vikum þar sem sótt er um þung­un­ar­rof af félags­leg­u­mástæðum.

Brynjar Níelsson kall­aði eftir því í umræðu um frum­varpið í gær að málið yrði dregið til baka svo það gæf­ist tími til að ræða um atriði á borð við rétt fóstra til að erfa eignir.

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, furðar sig á umræð­unni, gagn­rýnir bæði stuðn­ings­menn máls­ins og and­stæð­inga, og telur að skyn­sam­legt væri að láta það bíða næsta þings. „Vonandi verður þá mesta geðs­hrær­ingin yfir­staðin og hægt að ræða málið af meiri yfir­vegun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þungunarrof

InnlentÞungunarrof

Þrauta­ganga kvenna sem vilja enda þungun „Útlimir barns­ins þíns verða rifnir af, höfuð þess verður kramið“

And­stæð­ingar þung­un­ar­rofs í Banda­rík­unum beita harka­legum aðferðum til að þrýsta á konur að leita ekki réttar síns og rjúfa þungun. „Ekki drepa barnið þitt,“ og „Við getum hjálpað þér“ er meðal þess sem mót­mæl­endur gegn þung­un­ar­rofi kalla á konur sem leita sér aðstoðar. Konur sem vilja fóst­ur­eyð­ingu njóta fylgdar sjálf­boða­liða í gegnum hóp mót­mæl­enda.
Innlent

„Að blanda ein­hverfu í þetta er út í hött“

María Rut Krist­indóttir er ein margra sem gagn­rýnir Við­skipta­blaðið fyrir nafn­lausan pistil þar sem Greta Thunberg, sænska stúlkan sem hefur barist í lofts­lags­málum, er gagn­rýnd og vakin athygli á því að hún er ein­hverf. Mannlíf tók saman nokkrar sleggjur lið­innar viku. „Ósmekk­legt. Og að blanda ein­hverfu í þetta er út í hött … Og já umhverf­is­mál snú­ast ekki um vinstri-hægri...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu