Þingmaður vill að ríkið úthluti grásleppukvóta til tengdasonar síns

Jón Gunnarsson þingmaður sat í starfs­hópi um endur­skoðun á grásleppu­veiðum sem lagði til kvóta­setningu á fisknum. Dóttir Jóns er í stjórn grásleppu­útgerðar. Tengda­sonur hans gerir lítið úr fjár­hags­legri þýðingu kvótans.

Í starfshópi um kvótasetningu grásleppu
Í starfs­hópi um kvóta­setn­ingu grá­sleppu Jón Gunn­ars­son sat í starfs­hópi um kvóta­setn­ingu á grá­sleppu sem skil­aði til­lögum um að úthluta kvóta á teg­und­inni og byggja á veiði­reynslu. Tengda­sonur Jóns er grá­sleppu­veiði­maður á Siglu­firði. Mynd: Pressphotos

Jón Gunnarsson alþingis­maður vill að útgerðar­menn sem veitt hafa grásleppu á liðnum árum fái grásleppu­kvóta út frá veiði­reynslu sinni. Útgerðar­mennirnir munu þá meðal annars geta selt kvótann eða veðsett hann ef svo ber undir, líkt og gildir um annan kvóta í þorski eða öðrum tegundum. Þetta kemur fram í greinar­gerð starfs­hóps um kvóta­setningu á grásleppu sem Jón sat í og sem skilaði erindi um málið til Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávar­útvegs­ráðherra í fyrra. 

Hinir meðlimir starfs­hópsins voru Örn Pálsson, framkvæmda­stjóri Lands­sambands smábáta­eigenda og Erna Jóns­dóttir, lögfræðingur í sjávar­útvegs­ráðuneytinu. 

Útflutn­ings­verð­mæti rúm­lega 2 millj­arðarÚtflutn­ings­verð­mæti á grá­sleppu­af­urðum var rúm­lega 2 millj­arðar króna í fyrra.

Tengdasonur Jóns er grásleppukarl

Þessi laga­breyting myndi meðal annars koma sér vel fyrir tengdason Jóns Gunnars­sonar, sem rekur útgerðina BG Nes ehf. á Siglu­firði. Sú útgerð rekur tvo báta, Oddverja ÓF 76 og Odd á Nesi ÓF 176, sem báðir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár