Þingmaður Miðflokksins ver Duterte og segir hann fórnarlamb „falsfrétta“

„Þetta er eins og maður sé staddur í ein­hverju leik­riti herra for­seti,“ sagði Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé sem mis­bauð mál­flutn­ingur Birgis Þór­ar­ins­sonar til varnar fil­ip­p­eyskum stjórn­völdum.

Þingmaður Miðflokksins ver Duterte og segir hann fórnarlamb „falsfrétta“
Birgir Þór­ar­ins­son þing­maður Mið­flokks­ins Mynd: Miðflokkurinn

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, er óánægður með að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafi gagn­rýnt stjórn­völd á Fil­ipps­eyjum fyrir mann­rétt­inda­brot á vett­vangi Mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Í ræðu sem Birgir flutti á Alþingi í gær fagn­aði hann þeim árangri sem rík­is­stjórn Rodrigo Duterte hefði náð í stríði sínu gegn fíkni­efnum og glæpa­hringjum.„Árang­ur­inn af aðgerðum stjórn­valda er mik­ill og í flestum borgum lands­ins hefur glæpa­tíðni minnkað á bil­inu 40 til 70 pró­sent,“ sagði hann.

Samkvæmt árs­skýrslu Human Rights Watch hafa þús­undir verið drepnar í her­ferð Duterte gegn glæpa­hringjum síðan for­set­inn tók við emb­ætti í júní 2016. Sjálfur hefur for­set­inn við­ur­kennt að hafa staðið að aftökum án dóms og laga. Þá hefur hann hvatt lands­menn til að drepa eit­ur­lyfjafíkla og líkt sjálfum sér við Adolf Hitler.

Birgir Þór­ar­ins­son segir hins vegar að umræðan um ástandið á Fil­ipps­eyjum sé lituð af „fals­fréttum“. „Málið snýst um stríð gegn eit­ur­lyfjum þar í landi og hafa stjórn­völd verið sökuð um dráp á borg­urum án dóms og laga. Ekki er þó allt sem sýn­ist í þessum og mikið af fals­fréttum hefur verið dreift sem eru fjár­magn­aðar af eit­ur­lyfja­hringjum á Fil­ipps­eyjum og settar fram í þeim til­gangi að sverta stjórn­völd,“ sagði Birgir í ræðu sinni í gær.

Vill að eit­ur­lyfjafíklar deyiÁtak Rodrigo Duterte gegn eit­ur­lyfjum og glæpum snýst að miklu leyti um að murka lífið úr eit­ur­lyfjafíklum og eit­ur­lyfja­sölum. Hann hefur líkt sjálfum sér við Hitler.

„Fjöl­margir lög­reglu­menn hafa verið drepnir í þessum aðgerðum á Fil­ipps­eyjum, en þær hafa hins vegar skilað veru­legum árangri þar í landi og hófst þessi aðgerð fyrir þremur árum. Glæpa­tíðni á Fil­ipps­eyjum var há og má segja að landið hafi verið þjakað af eit­ur­lyfja­gengum.“ Sagði þing­mað­ur­inn að nú loks­ins væri staðan orðin þannig að almennir borg­arar gætu gengið óhultir um götur Fil­ipps­eyja að kvöld­lagi. 

„For­set­inn á Fil­ipps­eyjum nýtur mik­ils stuðn­ings meðal lands­manna og almenn­ingur á Fil­ipps­eyjum stendur fylli­lega við bakið á for­set­anum í þessu stríði. Ég tel að í þessu máli hefðum við átt að stíga var­legar til jarðar í mann­réttinda­ráð­inu.“

Blöskr­aði mál­flutn­ing­ur­inn**Kolbeinn Proppé**, þing­maður Vinstri grænna, gagn­rýndi Birgi Þór­ar­ins­son harð­lega.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, veitti and­svar og gagn­rýndi Birgi harð­lega fyrir mál­flutn­ing­inn.

„Er það, for­seti, skoðun hátt­virts þing­manns að stofn­anir eins og Amnesty International, sem talar um grun um þús­undir ólög­legra aftaka eða drápa af hendi lög­reglu á Fillips­eyjum, að þetta byggi allt á mis­skiln­ingi og fals­fréttum? Ég veit eig­in­lega ekki hvað skal segja við svona mál­flutn­ingi. Ég er of kurt­eis maður til að segja það sem ég hefði helst viljað segja hér í pontu,“ sagði hann. 

„Ég er of kurt­eis maður til að segja það sem
ég hefði helst viljað segja hér í pontu“

Kolbeinn rakti að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá yfir­völdum í Fil­ipps­eyjum hefðu 4948 grun­aðir eit­ur­lyfja­not­endur og eit­ur­lyfja­salar dáið frá 1. júlí 2016 til 30. sept­em­ber 2018 í stríð­inu gegn eit­ur­lyfjum. „Alþjóða­glæpa­dóm­stóll­inn til­kynnir að hann ætli að hefja for­rann­sókn á þessu – getur verið ef tæp­lega 5000 manns eru drepnir á þessum tíma í bar­átt­unni gegn eit­ur­lyfjum að eitt­hvað sé ekki í lagi? – í febr­úar 2018. Mánuði síðar til­kynnir for­seti Fil­ipps­eyja að hann ætli að draga landið úr Alþjóða­glæpa­dóm­stólnum. Og hér stendur hátt­virtur þing­maður, í for­rétt­inda­stöðu sinni uppi á Íslandi og kallar þessar hörm­ungar fals­fréttir. Mér er mis­boðið for­seti.“

Birgir sagði málið ekki jafn ein­falt og það liti út fyrir að vera. Sjálfur hefði hann rætt við sam­fé­lag Fil­ippsey­inga á Íslandi sem hefði frætt hann um stöðu mála. „Það fer tvennum sögum í þessum efnum og það er stað­reynd að það hefur verið dreift heil­mikið af fals­fréttum hvað varðar stöðu mála og þá sér­stak­lega þessar svoköll­uðu aftökur án dóms og laga,“ sagði Birgir. Kolbeinn sagði mál­flutn­ing­inn óboð­legan. „Þetta er eins og maður sé staddur í ein­hverju leik­riti herra for­seti.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár