Telja Báru hafa æft sig: Aðgerðin svo umfangsmikil og þaulskipulögð að hún sé „tæpast á færi einnar manneskju“

Mið­flokks­menn telja Báru Hall­dórs­dóttur hafa und­ir­búið sig ræki­lega, aflað sér­staks bún­aðar, lært á hann, komið sér upp dul­ar­gervi og æft sig. Raunar sé umfang aðgerð­ar­innar slíkt að fleiri hljóti að hafa verið að verki.

Telja Báru hafa æft sig: Aðgerðin svo umfangsmikil og þaulskipulögð að hún sé „tæpast á færi einnar manneskju“
Reimar Pét­urs­son lög­maður Mið­flokks­manna. Mynd: Davíð Þór

Reimar Pét­urs­son, lög­maður Mið­flokks­manna telur „óræka sönnun“ liggja fyrir um að Bára Hall­dórs­dóttir hafi verið búin að und­ir­búa sig kyrfi­lega sínar þegar hún hljóð­rit­aði sam­skipti þing­manna Mið­flokks­ins á Klaustri bar. Bára hljóti að hafa aflað sér sér­staks upp­töku­bún­aðar, lært á hann og æft aðgerðir sínar. Raunar hafi aðgerðin verið svo þaul­skipu­lögð, umfangið slíkt, að hún sé vart á færi einnar mann­eskju. 

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í ákvörðun Per­sónu­verndar þar sem kröfu Mið­flokks­manna um frek­ari gagna­öflun vegna Klaust­urs­máls­ins er hafnað. Per­sónu­vernd telur kröfur þing­mann­anna um að fá afhentar upp­lýs­ingar um sím­töl, smá­skila­boð og greiðslur ein­stak­lings ekki sam­ræm­ast þeim laga­heim­ildum sem stofn­unin hefur.

Mið­flokks­menn telja að mynd sem tekin var fyrir utan Klaustur bar og barst Stund­inni eftir að blaðið hóf umfjöllun um Klaust­urs­málið hafi verið tekin af Báru sjálfri.

Þá er haft eftir lög­manni þeirra að eftir atburð­ina á Klaustri hafi „ómældur tími hafi farið í skipu­lagn­ingu og aðgerðir til úrvinnslu efnis“, gengið hafi verið til aðgerða „með skipu­lögðum og ein­beittum hætti og að sú frá­sögn sé fjar­stæðu­kennd að þær hafi verið ákveðnar í ein­hvers konar fljót­færni“. 

„Ómældur tími hafi farið í skipu­lagn­ingu
og aðgerðir til úrvinnslu efnis“

Bára er sökuð um ósann­indi og frá­sögn hennar sögð sam­heng­is­laus auk þess sem full­yrt er að aðgerðir hennar hafi verið með þeim hætti að „fleiri en einn hafi þurft til þar sem fylgj­ast hafi þurft með ferðum manna, afla sér bún­aðar, læra á hann og útfæra og æfa aðgerðir. Slíkt sé tæp­ast á færi einnar mann­eskju“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár