Vann launakröfu í héraðsdómi en er óviss um að fá borgað

Sara Qujakitsoq vann nýverið launa­mál í Hér­aðs­dómi Vest­fjarða. Hún kom til Íslands frá Græn­landi árið 2017 og vann á gisti­heim­ili um sum­arið en fékk aðeins hluta launa sinna útborguð. Eigandi gisti­heim­il­is­ins mætti ekki fyrir dómi og hefur gefið út að hann ætli aldrei að borga henni.

Vann launakröfu í héraðsdómi en er óviss um að fá borgað

Sara Qujakitsoq kom til lands­ins til að fjár­magna nám í heima­landi sínu. Hún vann á Hnjót Guesthouse, gisti­heim­ili á Vest­fjörðum, frá 18. maí til 21. júlí árið 2017. Að eigin sögn vann hún þar frá morgni til nætur, en fékk aðeins 270.305 krónur útborg­aðar fyrir það. Verka­lýðs­fé­lag Vest­firð­inga til­kynnti mál hennar til lög­reglu sem mögu­legt man­sal. Lög­reglan mat það ekki sem svo, en verka­lýðs­fé­lagið hefur unnið í máli hennar síðan þá og upp­skar sigur fyrir hennar hönd í hér­aðs­dómi. Eigandi gisti­heim­il­is­ins hefur látið verka­lýðs­fé­lagið vita að hann hafi ekki litið á hana sem starfs­kraft og ætli því ekki að borga launa­kröf­una.

Mál Söru var rakið í Stund­inni í októ­ber 2017, en þá hafði henni fyrir skömmu verið „bjargað“ úr því sem vinur hennar á Græn­landi taldi vera nauð­ung­ar­vist. Sara ólst upp á Qaanaaq …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár