Berg­þór á Evrópu­ráðs­þingi: Varaði við harka­legum að­gerðum gegn kyn­ferðis­á­reitni þing­manna og kvartaði undan ó­sann­girni

Bergþór Ólason not­aði vett­vang Evr­ópu­ráðs­þings­ins til að kvarta undan ósann­gjarnri umræðu um Klaust­urs­málið.

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, kall­aði eftir því að Evr­ópu­ráðs­þingið færi sér hægt í aðgerðum gegn kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni á þjóð­þingum í ræðu sem hann flutti sem full­trúi Alþingis á vor­þingi Evr­ópu­ráðs­þings­ins nú í kvöld. Í ræðu sinni lýsti Bergþór rangs­leitni sem hann telur sig og aðra Mið­flokks­menn hafa orðið fyrir í Klaust­urs­mál­inu.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata og for­maður laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings, er fram­sögu­maður skýrslu um aðgerðir gegn kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni á þjóð­þingum sem kynnt var í dag. Mælti hún fyrir álykt­un­ar­til­lögu vegna máls­ins en þar er lagt til að þeim til­mælum verði beint til aðild­ar­ríkja að setja á fót óháða nefnd sem hægt verði að leita til ef starfs­maður við­kom­andi þjóð­þings verður fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi eða áreitni.

Í skýrslu Þór­hildar er minnst lít­il­lega á Klaust­urs­málið sem dæmi frá Íslandi:

Bergþór kvaddi sér hljóðs og lýsti óánægju með þessi orð. „Ég verð að segja að ég vona að restin af skýrsl­unni eigi sér styrk­ari stoðir en sú klausa sem ég vísa til,“ sagði hann.

„Það er alltaf hætta á því að póli­tískir and­stæð­ingar noti tæki­færið til að ýkja og gera hlut­ina verri en þeir raun­veru­lega eru í þágu eigin póli­tískra hags­muna. Í mál­inu sem minnst er á varð­andi þing­menn­ina sex á Íslandi, sem sátu á hinum alræmda bar síð­asta haust, þá tók það hóp­inn um fjóra mán­uði að fá við­eig­andi upp­lýs­ingar til að geta gefið raun­hæfa mynd af atburð­unum sem raun­veru­lega áttu sér stað þetta kvöld.  Til að orða það var­lega, þá er sú mynd sem birt­ist þegar afrit af öllum sam­skipt­unum og myndefni úr örygg­is­mynda­vélum er skoðað allt öðru­vísi en sú sem dregin hafði verið upp mán­uð­ina á undan.“ 

Kallaði Bergþór eftir því að Evr­ópu­þingið færi sér hægt að því er varðar við­ur­lög vegna kyn­ferð­is­legrar áreitni á þjóð­þingum. 

„Við verðum að fara var­lega þegar kemur að við­ur­lögum, við­ur­lögum sem verða að vera í takt við alvar­leika máls­ins hverju sinni. Ég hef mínar efa­semdir um að nefnd skipuð póli­tískum mótherjum geti talist hlut­laus vett­vangur til að meta alvar­leika mála.“ Lýsti hann áhyggjum af því að sann­leik­anum og sann­girni yrði kastað fyrir róða. „Ég hvet ykkur öll til að fara ykkur hægt í þessum efnum. Við verðum öll að vinna saman gegn kynja­for­dómum á öllum sviðum. Sjálfur mun ég gera mitt besta.“ 

Þór­hildur Sunna svar­aði Bergþóri fullum hálsi:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár