Ísland sat hjá í atkvæða­greiðslu um stríðs­glæpi gegn Palestínu­mönnum

Íslend­ingar fylgja sam­starfs­þjóðum að veru­legu leyti í Mann­réttinda­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna en hafa einnig hlotið lof fyrir að sýna frum­kvæði, meðal ann­ars í gagn­rýni á yfir­völd í Sádi-Arabíu. Ísland studdi þrjár af fjórum álykt­unum um mál­efni Ísraels og Palest­ínu.

Ísland sat hjá í atkvæða­greiðslu um stríðs­glæpi gegn Palestínu­mönnum
Leiðandi í gagn­rýni á Sáda Ísland hefur hefur beitt sér af krafti gegn mann­rétt­inda­brotum Sádí-Araba á vett­vangi Mann­réttinda­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna. Mynd: Stjórnarráð Íslands

Ísland sat hjá þegar Mann­réttinda­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna sam­þykkti ályktun um að fylgja skuli alþjóð­legum mann­úðar- og mann­rétt­inda­lögum á hernumdu svæð­unum í Palest­ínu og rétta yfir þeim sem brjóta þau. Danmörk, Ítalía og Bretland sátu einnig hjá við afgreiðslu til­lög­unnar en Spánn greiddi atkvæði með henni og Aust­ur­ríki gegn. Álykt­unin var sam­þykkt með 23 atkvæðum gegn átta þann 15. mars síð­ast­lið­inn ásamt þremur öðrum álykt­unum um Palest­ínu og mann­rétt­inda­vernd Palest­ínu­manna.

Ísland greiddi atkvæði með til­lögu um sjálfs­á­kvörð­un­ar­rétt palest­ínsku þjóð­ar­innar ásamt Aust­ur­ríki, Tékk­landi, Ítalíu og Spáni en Bretland og Danmörk greiddu atkvæði gegn henni. Atkvæði Evr­ópu­ríkja féllu á svip­aðan veg við afgreiðslu álykt­ana um ástand mann­rétt­inda­mála á hernumdu svæð­unum og um land­náms­byggðir Ísra­els­manna. Ísland og önnur Evr­ópu­ríki greiddu hins vegar atkvæði gegn álykt­un­ar­til­lögu frá Pakistan um ástand mann­rétt­inda­mála á Golan-hæðum í Sýrlandi sem Ísraelar hertóku í sex daga stríð­inu árið 1967.

Ályktað gegn mann­rétt­inda­brotumMann­réttinda­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþjóðamál

GreiningUppgjörið við uppgjörið

Þunna línan á milli þjóð­ern­isstolts og oflát­ungs­háttar

InDefence-hóp­ur­inn svo­kall­aði beitti þjóð­ern­is­legri orð­ræðu í áróð­urs­stríði við Breta, að mati Markúsar Þór­halls­sonar sagn­fræð­ings. Sótt var í 20. aldar sögu­skoðun um gullöld og nið­ur­læg­ing­ar­tíma­bil Íslend­inga­sög­unnar. 83 þús­und manns skrif­uðu undir „Icelanders are not ter­r­orists“-und­ir­skrifta­list­ann og hóp­ur­inn orsak­aði fyrstu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu lýð­veld­is­tím­ans.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár