Grátið í höfuðstöðvum WOW air

Skúli Mogensen seg­ist hafa átt „stór­kost­leg­asta ferða­lag lífs síns“, í bréfi sínu til starfs­fólks. Í morgun hefur starfs­fólk yfir­gefið höf­uð­stöðv­arnar, sumt hvert í upp­námi.

Yfirgáfu höfuðstöðvar WOW Þungt var yfir starfsfólki í höfuðstöðvum WOW air þegar kvatt var í morgun. Um þúsund manns missti vinnuna við gjaldþrot flugfélagsins.

Skúli Mogensen, stof­andi og eig­andi Wow air, fund­aði með starfs­fólki í höf­uð­stöðvum flug­fé­lags­ins í morgun eftir að rekstur flug­fé­lags­ins var skyndi­lega stöðv­aður. Uppnám er í höf­uð­stöðvum Wow air. Starfs­fólk hefur í morgun yfir­gefið höf­uð­stöðv­arnar, sumt hvert grát­andi. 

„Mér þykir ákaf­lega leitt að setja ykk­ur í þessa stöðu,“ sagði Skúli í morgun í bréfi til starfs­fólks. „Ég mun aldrei geta fyr­ir­gefið sjálf­um mér fyr­ir að hafa ekki gripið til aðgerða fyrr þar sem það er aug­ljóst að WOW var ótrú­legt flug­fé­lag og við vor­um á réttri leið að gera frá­bæra hluti aft­ur,“ skrif­aði hann.

WOW air tap­aði um 22 millj­örðum króna á síð­asta ári. Flug­ferðir voru til sölu hjá félag­inu allt þar til í morgun, þegar leigusalar gerðu vélar Wow air upp­tækar í Banda­ríkj­unum og Kanada. Það virð­ist hafa komið mörgum í opna skjöldu. Allt að fjögur þús­und manns, sem keyptu miða með WOW, eru stranda­glópar vegna stöðv­unar félags­ins.

Starfsfólk ósátt við nærveru fjölmiðlafólks

Starfs­fólk lýsti óánægju sinni með nær­veru fjöl­miðla í höf­uð­stöðv­unum í morgun. „Hvað er að?“ spurði starfs­maður fjöl­miðla­fólk áður en hún lok­aði dyr­unum. Mikil sam­staða hefur verið hjá starfs­fólk­inu í aðdrag­and­anum að rekstr­ar­stöðvun félags­ins. Að sögn Skúla Mogensen bauðst starfs­fólk til þess að gefa hluta launa sinna til að tryggja áfram­hald­andi rekstur. Þá sendi stétt­ar­fé­lag flug­manna WOW air frá sér beiðni til Blaða­manna­fé­lags Íslands um að rann­sókn yrði hafin á blaða­mönnum, vegna „óvæg­innar umfjöll­unar íslenskra frétta­miðla“ um stöðu WOW air. 

„Þetta er bara hræði­legt“

„Ég held ég þurfi smá tíma til að melta þetta. Þetta er bara hræði­legt,“ sagði einn starfs­mað­ur­inn, Anna Gréta Odds­dóttir.

Höf­uð­stöðvar WOW airStarfs­fólk hefur verið að yfir­gefa höf­uð­stöðv­arnar í Katrín­ar­túni í morgun.

Bjart­sýni hefur ein­kennt við­mót Skúla Mogensen und­an­farna daga. Í við­tali við Vísi á þriðju­dag kom hann fram og greindi frá því að staðan væri góð. „Bókanir inn á apríl og annan árs­fjórð­ung hafa líka gengið vel. Ég held að það sýni þann mikla stuðn­ing og traust sem við höfum notið,“ sagði Skúli. „Ég segi með miklu öryggi, við vitum nákvæm­lega  hvað við erum að gera og hvert við erum að fara og við sjáum árang­ur­inn nú þegar skila sér.“

Ekki var unnt að fá við­tal við for­stjóra félags­ins í morgun. Skúli hafði opin­ber­lega sagst vera „mjög ánægður“ og bjart­sýnn allt fram að skyndi­legri stöðvun rekstr­ar­ins. Í bréfi sínu í morgun sagð­ist hann þakk­látur starfs­fólki og far­þegum.

„Síðast en ekki síst vil ég þakka ykk­ur, mín­ir kæru vin­ir, fyr­ir stór­kost­leg­asta ferða­lag lífs míns. Við mun­um alltaf vera WOW og ég mun aldrei gleyma ykk­ur. Ég vona og treysti því að þið munið aldrei gleyma WOW-and­an­um og að þið takið hann með ykkur í ykk­ar næsta æv­in­týri. Takk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fall WOW air

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár