Tabú afþakkar fundarboð: „Ekki hægt ætlast til þess að þolendur þessa ofbeldis mæti gerendum“

Fötlunar­hreyfingin segir Önnu Kolbrúnu Árna­dóttur hafa orðið uppvísa að haturs­orðræðu gegn fötluðu fólki og öðrum jaðar­settum hópum og gagnrýnir að hún hafi kallað Báru Halldórs­dóttur fyrir Héraðsdóm Reykja­víkur vegna Klausturs­málsins.

Tabú, femínísk fötlunar­hreyfing, óskaði eftir því að Anna Kolbrún Árna­dóttir, þingkona Miðflokksins, viki af fundi þegar fulltrúar hreyfingarinnar kæmu fyrir nefndina til að ræða breytingar á almennum hegningar­lögum sem snúast um þrengingu ákvæðis um haturs­orðræðu. Þegar ljóst var að ekki yrði orðið við því ákvað Tabú að afþakka fundar­boðið. 

Þetta kemur fram í yfir­lýsingu á vef hreyfingarinnar. Alþingi hefur nú til umfjöllunar stjórnar­frumvarp sem snýst um að rýmka frelsi fólks til að rógbera, smána og ógna hópum á grund­velli þjóðernis, litar­háttar, kynþáttar, trúar­bragða, kynhneigðar og kynvitundar. Verði frum­varpið að lögum mun ekki lengur vera refsivert að níða og niður­lægja minnihluta­hópa á Íslandi nema slík tjáning sé „til þess fallin að hvetja til eða kynda undir hatri, ofbeldi eða mismunun“. 

Tabú er á meðal þeirra fjölda umsagnar­aðila sem leggjast gegn frum­varpinu. Var hreyfingunni boðið á fund allsherjar- og menntamála­nefndar Alþingis til að lýsa afstöðu sinni. 

„Í ljósi þeirrar stað­reyndar að einn nefndar­manna er Anna Kolbrún Árna­dóttir, þingmaður Miðflokksins og einn gerenda í Klausturs­málinu, fór Tabú fram á að hún viki af fundinum þegar fulltrúar okkar kæmu fyrir nefndina,“ segir í yfir­lýsingu hreyfingarinnar. „Var það gert vegna þess að Anna Kolbrún varð uppvís að haturs­orðræðu gegn fötluðu fólki og öðrum jaðar­settum hópum, sagði ekki af sér í kjölfarið og tók þátt í að kalla Báru Halldórs­dóttur fyrir Héraðsdóm Reykja­víkur.“ 

Páll Magn­ús­sonfor­maður nefnd­ar­innar

Fram kemur að Páll Magnússon, formaður þing­nefndarinnar, hafi brugðist við erindinu með eftir­farandi hætti í tölvu­pósti: 

Sæl Embla

Fasta­nefndir Alþingis eru þing­kjörnar og hvorki nefndirnar sjálfar né formenn þeirra hafa með það að gera hverjir þar sitja. Ósk um að þið komið á fund nefndarinnar stendur óbreytt.

Bestu kveðjur,
Páll Magnússon

Tabú segist ekki geta unað við þetta. „Hér kemur í ljós hversu alvarlegt það er að Alþingi hafi ekki axlað ábyrgð með afdráttar­lausum hætti í Klausturs­málinu og að Klausturs­þingmenn hafi ekki sagt af sér þing­mennsku. Ekki er hægt ætlast til þess að þolendur þessa ofbeldis mæti gerendum við þessar aðstæður.“

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Vinstri grænna og nefndar­maður í allsherjar- og menntamála­nefnd, tjáir sig um málið á Facebook. „Enn flækir Klausturs­málið þingstörf. Áður hefur Rannsóknar­setur í fötlunar­fræðum tilkynnt að það muni sniðganga fundi í nefndum með Klausturs­fólki, en nú bætist Tabú í hópinn. Þetta setur þing­nefndum miklar skorður í umfjöllun um mikil­vægan málaflokk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár