Bylgja hatursorðræðu gegn hælisleitendum: „Grýta þetta pakk“

Flótta­mönn­unum sem kröfð­ust betri aðstæðna hefur verið óskað dauða á sam­fé­lags­miðlum og margir hvetja til þess að þeir verði sendir úr landi. Sstjórn­mála­menn eru ósáttir og fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra varar við smit­hættu.

Bylgja hatursorðræðu gegn hælisleitendum: „Grýta þetta pakk“

Fjölmörg dæmi eru um að flótta­menn sem mót­mælt hafa aðstöðu sinni og við­tökum íslenska rík­is­ins und­an­farna daga séu kall­aðir „pakk,“ „hyski“ og „við­bjóður“ á sam­fé­lags­miðlum. Fólkið sem tjáir sig um flótta­menn­ina gengur í sumum til­fellum svo langt að óska þeim dauða.

Þá hafa fyrr­ver­andi og núver­andi stjórn­mála­menn úthrópað hæl­is­leit­end­urnar fyrir að tjalda á Aust­ur­velli. Björn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, setti mót­mæli flótta­manna í sam­hengi við smit­hættu og frosið kjöt og átaldi borg­ar­stjórn fyrir að heim­ila þeim að tjalda. Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, gagn­rýndi Dóm­kirkj­una fyrir að heim­ila hæl­is­leit­end­unum að nýta sal­erni kirkj­unnar. Þá reidd­ist Halldór Blöndal, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­seti Alþingis, hæl­is­leit­end­unum og skamm­að­ist í þeim á Aust­ur­velli. Fjöldi fólks skrifar ummæli undir frétt um athæfi Halldórs honum til stuðn­ings og hvetja margir til þess að hæl­is­leit­end­unum sé vísað úr landi.

Lög­fræð­ingur og sér­fræð­ingur í hat­urs­orð­ræðu sem Stundin ræddi við varar við því að hat­urs­orð­ræða geti virkað sem hvatn­ing til óstöðugra ein­stak­linga til þess að grípa til ofbeldis. 

Samhengi við smit­hættuBjörn Bjarna­son, fyrr­ver­andi dóms- og mennta­mála­ráð­herra, skrif­aði færslu á blogg­síðu sína þar sem hann ræddi um smit­hættu inn­fluttra mat­væla, mik­il­vægi þess að ferða­fólk „gæti fyllsta hrein­lætis“. Hann taldi veru hæl­is­leit­enda á Aust­ur­velli „vekja spurn­ingar um hvort gætt hafi verið allra nauð­syn­legra hrein­lætis- og örygg­is­krafna“.

Hælisleitendur nefndir „innrásarlið“

„Þetta fólk ''PAKK'' vinnur hörðum höndum að því að leggja niður þjóð­ríkið Ísland! Fellum stjórn­ina núna ! Þetta PAKK mýgur á styttu Jóns Sig­urðs­sonar og á elsta Alþingi í heimi. Van­virð­ingin er algjör ! Ég heimta aðgerðir ef ekki förum við sjálfir í málið og krefj­umst sömu frið­helgi og inn­rás­ar­liðið hefur ! P.s, Íslenska þjóðin er þræl vopnuð annað til þriðja hvert heim­ili á skot­vopn!“

Ofan­greind ummæli skrifar maður í færslu á Facebook síðu sinni, sem við­bragð við mót­mælum hæl­is­leit­anda. Vinir manns­ins taka í sama streng og deila færsl­unni. Færslan hefur því náð þó nokk­urri dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum. Sömu­leiðis hefur téður maður dreift mynd með fyr­ir­sögn­inni „Fram­tíðin er ekki björt fyrir litla Ísland með galopin landa­mæri.“ Skila­boðin eiga að sýna hvað verður um Ísland ef dyrnar eru opn­aðar fyrir flótta­mönnum en þar birt­ast myndir af átökum í löndum sem flótta­menn hafa sótt um hæli í. Myndin hefur fengið rúm­lega 200 deil­ingar á Facebook.

Myndin sem er í dreif­ingu á FacebookMynd þessi hefur fengið rúm­lega 200 deil­ingar á Facebook

Kona segir í ummælum við mynd á síðu Frels­is­flokks­ins að þögul mót­mæli virki ekki. Íslend­ingar þurfi að taka upp „stefnu Frakka í mót­mælum“ og „grýta þetta pakk.“

Önnur kona ritar svip­aða færslu á Facebook. „Það er ekki aum­ingja­skap­ur­inn í Frökkum í París, þeir láta verkin tala, Íslend­ingar ættu að taka þá til fyr­ir­myndar og mót­mæla hel­vítis við­bjóðnum hérna.“ Vitnar sú kona í frétt í erlendum fjöl­miðli þar sem fyr­ir­sögnin er „París brennur“ og mynd af Par­ís­ar­búum að mót­mæla með bál­köst í bak­grunni.  

„Þetta er hyski og ég segi bara hvar er lof­steinn þegar hann má falla þarna?“

„Þetta er hyski og ég segi bara hvar er lof­steinn þegar hann má falla þarna???“ segir í ummælum sem koma fram á Facebook síðu Vakurs, sam­taka um evr­ópska menn­ingu. Á Facebook- síð­unni kemur fram að Vakur vilji upp­lýsta umræðu um það hvort Ísland vilji breyt­ast úr evr­ópsku og lýð­ræð­is­legu þjóð­ríki í „óskil­greint fjöl­menn­ing­ar­ríki.“

Á mynd sem Vakur birtir ritar maður einn þessi ummæli: „Þessum hlakkar til að láta hengja sig eða henda sér ofan af þaki“. Á mynd­inni er maður með mót­mæla­spjald sem á stendur „Flótta­menn vel­komnir hér.“

„Þessi hlakkar til að láta hengja sig
eða henda sér ofan af þaki“

Á einni mynd sem Vakur setur á síðu sína, standa þessi orð: „But we have reached a turn­ing-point. We must make a decision: shall we remain a child-like people, giv­ing little thought to our Future, till someday we find that we have none?“ Vakur vitnar með þessum orðum í Arthur Moeller van den Bruck, Þjóð­verja sem er best þekktur fyrir umdeilt rit sitt Das Dritte Reich sem nas­istar í Þýska­landi höfðu í hávegum á sínum tíma.

Tengja flóttamenn við erlend hryðjuverk

Maður nokkur tengir hryðju­verkin í Nýja-Sjálandi við mót­mæli hæl­is­leit­anda á Aust­ur­velli. „Til þeirra sem enn eru tár­vot útaf atburðum á Nýja-Sjálandi. Við eigum í stríði við íslam! Helstu fórn­ar­lömb í stríði eru alltaf sak­lausir... það sem er að ger­ast á Aust­ur­velli er skipu­lögð yfir­taka íslams á Íslandi. Flótta/hælis er bara til­búið valda­skím ætlað til að mýkja lina vest­ur­landa­búa.“

„Við eigum í stríði við íslam!“

Þá skrifar kona ummæli við frétt um skotárás­ina í Utrecht: „Það eru gerðar skyndi­árásir víða um Evrópu, erum við ekki að fatta að við fáum send­ingar til lands­ins sem eru sömu trúar og eru með aðgerðir gegn þeim þjóð­löndum sem þeir læð­ast inn í sem „hæl­is­leit­endur“. Annar maður sem skrifar ummæli við sömu frétt spyr lög­regl­una hvort hún sé búin gera vopna­leit í tjald­inu sem stóð á Aust­ur­velli.

Varar við afleiðingunum

Jóna Aðal­heiður Páls­dóttir, lög­fræð­ingur sem skrif­aði skýrslu um hat­urs­orð­ræðu fyrir Mann­rétt­inda­skrif­stofu Íslands, segir að hat­urs­full orð­ræða geti haft þær afleið­ingar að hvetja óstöðuga ein­stak­linga til að fram­fylgja and­stöðu sinni við til­tekna hópa með ofbeldi.

„Allt sem hvetur til aðgerða, eins og margt þarna gerir, ummælin virð­ast sum hver óbeint og sum beint, hvetja til aðgerða, er hat­urs­orð­ræða og er brot gegn hegn­ing­ar­lögum,“ segir Jóna.  

Jóna vitnar þar í 233. gr. almenna hegn­ing­ar­laga en þar segir að hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ráð­ist opin­ber­lega á mann eða hóp manna vegna þjóð­ernis þeirra, lit­ar­háttar, kyn­þáttar, trú­ar­bragða eða kyn­hneigðar skuli sæta sektum eða fang­elsi allt að 2 árum.

Jóna segir hörm­ung­arnar sem áttu sér stað í Nýja-Sjálandi vera afleið­ingar hat­urs­orð­ræðu, en slík orð­ræða geta virkað sem hvatn­ing fyrir ein­stak­ling með rasískar skoð­anir til að grípa til aðgerða.

Flótta­menn­irnir hafa nú yfir­gefið Aust­ur­völl og tekið niður tjald sitt undir þeim for­merkjum að þeir ótt­ast um öryggi sitt þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár