Tilkynna lögreglu vegna notkunar piparúða gegn mótmælendum

Solaris, hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, sendu til­kynn­ingu á nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu vegna fram­göngu lög­regl­unnar á mót­mælum hæl­is­leit­anda á Aust­ur­velli í gær.

Tilkynna lögreglu vegna notkunar piparúða gegn mótmælendum

Solaris, hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi, sendu til­kynn­ingu á nefnd um eft­ir­lit með lög­reglu, vegna fram­göngu lög­reglu­manna gegn mót­mæl­endum á Aust­ur­velli í gær.

Sema Erla Serdar, for­maður Solaris, var við­stödd mót­mæli hæl­is­leit­anda á Aust­ur­velli í gær. Sema seg­ist ekki hafa annað séð en að mót­mælin færu frið­sam­lega fram. „Barið var á trommur, hrópuð voru slag­orð og fólk dans­aði til þess að halda á sér hita.“ segir Sema.

Sema segir í til­kynn­ing­unni að það hafi ekki verið fyrr en lög­reglan gerði til­raun til að ýta við hópnum og færa hann til sem að til rysk­inga kom á milli mót­mæl­enda og lög­reglu. Hún segir sömu­leiðis að piparúða hafi verið beitt á mót­mæl­endur en eng­inn hafi verið var­aður við. Hún hafi ekki séð neinn hlúa að mót­mæl­endum í kjöl­far þess að þau hafi verið spreyjuð.

Í til­kynn­ingu frá lög­reglu segir að „á sjö­unda tím­anum lagði lög­reglan hald á pappa­spjöld og vöru­bretti úr fórum mót­mæl­enda því hún taldi að verið væri að hlaða í bál­köst.“

Sema segir pappa­spjöldin lík­leg­ast hafa verið ætluð til þess að gera mót­mæla­spjöld. „Ég sá ein­stak­linga koma með pappa­spjöld, ég gat ekki séð annað en það ætti að fara skrifa á þessi spjöld, sem sagt búa til mót­mæla­spjöld. Ég sá enga til­raun til að reyna kveikja eld,“ segir Sema.

„Ég sá enga til­raun til að reyna kveikja eld“

Lög­reglan segir mót­mæl­endur hafa reynt að verja spjöldin og brettin með því að leggj­ast ofan á þau og þess vegna hafi lög­reglan þurft að beita afli. Eftir að afli var beitt, hafi einn mót­mæl­anda sparkað í lög­reglu og verið hand­tek­inn. Annar mót­mæl­andi hafi ráð­ist að lög­reglu­manni sem sá um hand­tök­una og verið hand­tek­inn fyrir vikið. Við þetta telur lög­reglan að hluti mót­mæl­anda hafi gert að sér aðsúg og þeir hafi þurft að svara með notkun piparúða.

Fram­gangur lög­reglu á mót­mælum hæl­is­leit­andaMyndband fengið af facebook síðu flótta­manna á Íslandi

Sema spyr í til­kynn­ingu til lög­reglu hverjar verk­lags­regl­urnar varð­andi notkun lög­reglu á piparúða séu. „Á ekki að aðstoða þá sem verða fyrir piparúða? Hvernig var það gert í þessu til­felli? Var tryggt að allir vissu hvernig ætti að leita sér aðstoðar? Hvenær var kallað eftir sjúkra­bíl? Var varað við að nota ætti piparúða? Hvernig rétt­lætir lög­reglan notkun á piparúða á mót­mæl­endur í þessu til­felli? Var rétt staðið að hand­tök­unum? Var tryggt að mót­mæl­endur skyldu fyr­ir­mæli sem þeir fengu?“

„Var tryggt að mót­mæl­endur skyldu fyr­ir­mæli sem þeir fengu?“

„Þarna er um við­kvæman minni­hluta­hóp að ræða sem þarf að standa vörð um rétt­indi þeirra nú þegar og það er mikið áhyggju­efni ef til átaka kemur milli þeirra og lög­reglu. Að mínu mati er mjög alvarl­vegt að grípa til vopna eins og piparúða við mómæli. Það er frelsi til að mót­mæla í þessu landi og það er tján­ing­ar­frelsi,“ segir Sema.

Lög­reglan segir skilj­an­legt að það veki eft­ir­tekt þegar lög­reglan neyð­ist til að verja sig með úða. Lög­reglan seg­ist sömu­leiðis „forð­ast þvert á móti í lengstu lög að fara vald­beit­ing­ar­leið­ina.“ Þegar mót­mæli fær­ist yfir í skemmd­ar­verk eða ef mót­mæl­endur óhlýðn­ist eða ráð­ist gegn lög­reglu­mönnum við skyldu­störf þá sé öryggi borg­ara og lög­reglu í hættu og við því þurfi lög­regla alltaf að bregð­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár