Sorglegt að dómsmálaráðherra hafi ekki farið eftir reglum

Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður segir stöð­una sem komin er upp eftir nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu afskap­lega sorg­lega. Íslenska ríkið var áður dæmt í Hæsta­rétti fyrir að ganga fram­hjá honum sem umsækj­anda í emb­ætti dóm­ara.

Sorglegt að dómsmálaráðherra hafi ekki farið eftir reglum

Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, einn þeirra umsækj­enda sem Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra gekk fram hjá við skipan í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, segir stöð­una í mál­inu afskap­lega sorg­lega.

Í dómi Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu sem kveð­inn var upp í morgun var íslenska ríkið dæmt brot­legt vegna vinnu­bragða Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra þegar hún skip­aði fjóra dóm­ara við Lands­rétt í trássi við mat hæfn­is­nefndar sum­arið 2017.

„Nið­ur­staðan kemur ekki á óvart,“ segir Jóhannes Rúnar. „Þetta er stað­fest­ing á því að það átti að fara eftir þeim reglum sem giltu. Það var ekki gert og þar af leið­andi sitjum við uppi með þennan dóm í dag, því miður. Þetta er afskap­lega sorg­legt. Nú þarf að vinna úr þeirri stöðu sem er komin upp.“

Jóhannes Rúnar var einn þeirra fimmtán umsækj­enda sem dóm­nefnd mat hæf­asta til að gegna emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt. Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra gerði hins vegar til­lögu um að skipti fjórum þeirra út, Jóhann­esi Rúnari þar á meðal, fyrir fjóra sem ekki voru metnir á meðal þeirra hæf­ustu.

Jóhannes Rúnar kærði íslenska ríkið vegna máls­ins. Í dómi Hæsta­réttar í mál­inu kom fram að dóms­mála­ráð­herra hefði ekki farið eftir þeim reglum sem henni bar að fylgja þegar hún gerði til­lögu um að vikið yrði frá áliti dóm­nefndar. Íslenska ríkið var dæmt  til að greiða Jóhann­esi Rúnari og Ástráði Har­alds­syni, sem einnig hafði verið met­inn á meðal þeirra hæf­ustu, 700 þús­und krónur hvorum.

Meðal þeirra sem Sigríður skip­aði, sem metnir voru minna hæfir en Jóhannes Rúnar, var eig­in­kona Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og sam­flokks­manns Sigríðar. Þá valdi hún eig­in­mann sam­starfs­konu sinnar og eig­anda lög­manns­stof­unnar Lex, Jón Finn­björns­son, fram yfir 29 aðra sem metnir voru hæf­ari af sér­stakri hæf­is­nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Skipun dómara við Landsrétt

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár