Vill spyrna við vanlíðan ungmenna á samfélagsmiðlum

Arnrún Berg­ljót­ar­dóttir fann hvað glans­myndin á Instagram hafði slæm áhrif á líðan hennar þegar hún glímdi við and­lega erf­ið­leika í kjöl­far kyn­ferð­is­of­beldis. Til að spyrna við þessu stofn­aði hún Instagram-síð­una Undir yfir­borð­inu þar sem alls konar fólk segir frá erf­ið­leikum sínum. Þá heldur hún úti fundum fyrir fólk með geð­sjúk­dóma.

Vill spyrna við vanlíðan ungmenna á samfélagsmiðlum

Arnrún Berg­ljót­ar­dóttir er 22 ára leik­skóla­starfs­maður, en hefur nýlega vakið athygli sem annar af stofn­endum MHA-sam­tak­anna (Mental Health Anonymous) auk þess sem hún heldur úti Instagram-reikn­ingnum Undir yfir­borð­inu hvers til­gangur er að beina sjónum net­not­enda að líðan fólks á bak við skjá­inn. Síðuna stofn­aði Arnrún í lok árs­ins sem leið og hefur hún vakið nokkra athygli.

„Hún á að minna fólk á hvað býr undir yfir­borðs­kennda Instagram. Þar er allt rosa­lega fegrað, alltaf talað um árang­ur­inn en aldrei ferlið. Þú sérð bara óléttu­mynd­ina, en veist ekk­ert hvað kona þurfti að ganga í gegnum mörg fóst­ur­lát. Þú sérð mynd af ham­ingju­sömu pari, sem kannski tók klukku­tíma að ná af því þau voru að ríf­ast allan tím­ann. Maður sér ekki alvar­leika lífs­ins. Og fyrir fólk sem líður illa getur þetta verið hættu­legur mið­ill vegna þess að hann telur því trú um að allir aðrir hafi það miklu betra. Að þú sért …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár