Ég er ekki með sjúkdóm

Um sex þús­und Íslend­ingar eru fæddir með ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni og eru þar af leið­andi inter­sex, þó að margir þeirra gang­ist ekki við þeirri skil­grein­ingu. Ein þeirra sem gengst stolt við skil­grein­ing­unni er Bríet Finns­dóttir. Hún hefur frá barn­æsku lagt sig fram við að kenna öðrum hvað það þýðir að vera inter­sex.

Ég er ekki með sjúkdóm
Ekkert leynd­ar­mál Sú stað­reynda að Bríet er inter­sex hefur aldrei verið leynd­ar­mál. Þegar hún var lítil sá mamma hennar til þess að kenn­arar hennar og skóla­fé­lagar vissu af því. Þegar Bríet var tíu ára stóð hún fyrst upp fyrir framan bekk­inn sinn sjálf og hélt kynn­ingu á því, hvað það þýðir að vera inter­sex. Mynd: Gunnar Gunnarsson

Ein­stak­lingar sem fæð­ast á Íslandi og hafa ódæmi­gerð líf­fræði­leg kynein­kenni kunna að sæta mis­munun og til­raunum til að laga lík­ama þeirra að við­teknum „normum“, ýmist með skurð­að­gerðum eða horm­óna­með­ferð. Þetta leiðir rann­sókn mann­rétt­inda­sam­tak­anna Amnesty International í ljós en hún bygg­ist meðal ann­ars á sam­tölum við inter­sex ein­stak­linga fædda hér á landi. Ein þeirra sem skýrslu­höf­undar ræddu við er Bríet Finns­dóttir sem fædd­ist á Egils­stöðum fyrir rúm­lega 22 árum.

Bríet er náskyld einni þekkt­ustu inter­sex-bar­áttu­mann­eskju lands­ins, Kitty Anderson, for­manni Intersex Ísland, sem þær stofn­uðu í sam­ein­ingu. Þær eru systra­dætur. Þegar Bríet fædd­ist kom í ljós að hún var með ódæmi­gerð kynein­kenni, alveg eins og frænka hennar sem fædd­ist nokkrum árum fyrr. Mamma hennar ákvað strax þá að taka mið af reynslu systur sinnar og Kittyar. Dóttir hennar, Bríet, skyldi ekki þurfa að burð­ast um með leynd­ar­mál, enda þótti henni engin ástæða til. „Kitty frænka mín …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár