Nýr forstjóri Sjúkratrygginga: Er réttlætanlegt að skattfé renni til eigenda heilbrigðisfyrirtækja í formi arðgreiðslna?

„Kannski væri heppi­legra að þetta fé færi í að auka hag­kvæmni heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og gæðin,“ segir María Heim­is­dóttir, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands, í við­tali í Lækna­blað­inu.

Nýr forstjóri Sjúkratrygginga: Er réttlætanlegt að skattfé renni til eigenda heilbrigðisfyrirtækja í formi arðgreiðslna?

María Heim­is­dóttir, nýr for­stjóri Sjúkra­trygg­inga Íslands, telur óeðli­legt að skattfé renni til eig­enda heil­brigð­is­fyr­ir­tækja í formi arð­greiðslna. Þetta kemur fram í við­tali við hana sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins. Í við­tal­inu er vikið að arð­greiðslu­bann­inu sem Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra setti á einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar. 

Aðspurð hvort rétt sé að setja slíkar reglur víðar segir María að bannið sé ekk­ert eins­dæmi í Evrópu og nú hafi aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins til skoð­unar hvort eðli­legt sé að fyr­ir­tæki sem greiði arð fái að taka þátt í útboðum á heil­brigð­is­þjón­ustu.

Haft er eftir Maríu: „Nú greiða skatt­borg­arar alla heil­brigð­is­þjón­ustu á land­inu og engir aðrir pen­ingar eru í umferð í kerf­inu. Er rétt­læt­an­legt að nota þetta skattfé til að greiða eig­endum heil­brigð­is­fyr­ir­tækja stórar fjár­hæðir í arð? Kannski væri heppi­legra að þetta fé færi í að auka hag­kvæmni heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og gæðin.“ 

Stundin hefur fjallað ítar­lega um einka­rekstur í heil­brigð­is­þjón­ustu und­an­farin ár. Á meðal arð­söm­ustu fyr­ir­tækja Íslands eru fyr­ir­tæki sem sér­hæfa sig í heil­brigð­is­þjón­ustu og sækja tekjur sínar að veru­legu leyti til íslenska rík­is­ins með samn­ingum við Sjúkra­trygg­ingar Íslands.

Hér má t.d. nefna bækl­un­ar­lækna­fyr­ir­tækið Stoð­kerfi í Orku­hús­inu til dæmis sem hefur greitt út hátt í 400 millj­óna arð til hlut­hafa sinna und­an­farin ár og Lækna­vakt­ina í Kópavogi hefur greitt hlut­höfum 200 millj­óna króna arð frá hrun­inu 2008. Arð­greiðslu­bannið á heilsu­gæslu­stöðv­arnar tekur ekki til þess­ara fyr­ir­tækja né til röntgen­mynda­fyr­ir­tæk­is­ins Lækn­is­fræði­legrar mynd­grein­ingar ehf. í Dómus Medica sem greiddi 447 millj­óna króna arð til hlut­hafa árin 2011 til 2016. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár