Geðlæknir segir raunir Gunnars Braga „alvarlegt merki um tímabundna heilabilun“

Ólaf­ur Þór Æv­ars­son seg­ir að ef flug­stjóri lenti í því sama og Gunn­ar Bragi væri hann send­ur í veik­inda­leyfi og kæmi ekki til vinnu fyrr en eft­ir ít­ar­leg­ar rann­sókn­ir og áfeng­is­með­ferð.

Geðlæknir segir raunir Gunnars Braga „alvarlegt merki um tímabundna heilabilun“

Ef Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, fór raunverulega í 36 klukkustunda óminnisástand eins og hann lýsti í fjölmiðlum í gær, þá er það „alvarlegt merki um tímabundna heilabilun“. 

Þetta er mat Ólafs Þórs Ævarssonar geðlæknis og haft eftir honum í litlum fróðleiksmola á Facebook-síðu Forvarna ehf., meðferðar- og fræðsluseturs. „“Blackout” eða minnisleysi vegna áfengisdrykkju er vegna alvarlegrar starfssemistruflunar í minnisstöðvum heilans. Ef slíkt ástand hefur varað í einn eða fleiri sólarhringa er það alvarlegt merki um tímabundna heilabilun,“ segir dr. Ólafur. „Ástæður eru yfirleitt mjög mikil áfengisneysla eða langvinnt áfengisvandamál. Einstaklingur með slík einkenni er ekki vinnufær. Ef hann gegndi ábyrgðarstarfi, sem t.d. flugstjóri, væri hann sendur í langt veikindaleyfi og kæmi ekki til vinnu fyrr en eftir ítarlegar rannsóknir og áfengismeðferð.“

Gunnar Bragi Sveinsson sagði í viðtali á Hringbraut í gærkvöldi að hann myndi ekkert  ekkert um samræður sínar og annarra þingmanna á barnum Klaustri þar sem hann hafi fallið í algert óminni um leið og hann kom á barinn. Minnisleysið hafi varað í einn og hálfan sólahring eftir barheimsóknina. Gunnar Bragi sneri aftur á þing í gær eftir nokkurra vikna launaleyst leyfi vegna Klaustursmálsins, en þeir Bergþór Ólason gengu einna harðast fram í óhróðri gegn samstarfskonum sínum.

Ekki náðist í Ólaf Þór við vinnslu fréttarinnar. Hann er  sérfræðingur í geðlækningum, lauk doktorsprófi frá læknadeild Gautaborgháskóla árið 1998 og hefur starfað að lækningum og kennslu við háskólageðdeildir erlendis og á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Berg­þór gerð­ur að nefnd­ar­for­manni með tveim­ur at­kvæð­um – Full­trú­ar annarra flokka sátu hjá

Berg­þór Óla­son klæmd­ist og út­húð­aði stjórn­mála­kon­um á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typp­ið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar hon­um for­mennsku með hjá­setu í at­kvæða­greiðslu, en að­eins Berg­þór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu at­kvæði með því að hann yrði formað­ur.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ing­ar Berg­þórs og Gunn­ars Braga á um­mæl­um um Al­bertínu skiptu ekki máli

Eft­ir að siðanefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að um­mæli Gunn­ars Braga og Berg­þórs Óla­son­ar um Al­bertínu Frið­björgu Elías­dótt­ur og MeT­oo væru brot á siða­regl­um sögð­ust þing­menn­irn­ir hafa ver­ið að lýsa erfiðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kem­ur lýsingu BÓ og GBS á sam­skipt­um þeirra við Al­bertínu Frið­björgu Elías­dótt­ur, sbr. kafli 2.5., verð­ur ekki séð að lýsing­ar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxt­um,“ seg­ir for­sæt­is­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
1
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
3
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Halldór Jörgen Olesen
5
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár