Deilt um hvort vísa megi 19 mánaða barni úr landi

Aðal­með­ferð í máli Ernu Reka fer fram í dag. Erna er fædd á Íslandi en Útlend­inga­stofnun hefur úrskurðað að vísa eigi henni og for­eldrum hennar úr landi.

Deilt um hvort vísa megi 19 mánaða barni úr landi
Berjast gegn brott­vísun Aðal­með­ferð fer fram í máli Ernu Reka í dag en Útlend­inga­stofnun hefur úrskurðað að vísa eigi henni og fjöl­skyldu hennar úr landi. Mynd: Esther Ýr Þorvaldsdóttir

Aðal­með­ferð fer í dag fram í máli Ernu Reka, 19 mán­aða gam­allar stúlku sem fædd er á Íslandi í apríl 2017 en fyrir hér­aðs­dómi verður tek­ist á um úrskurð Útlend­inga­stofn­unar þess efnis að vísa skuli Ernu og for­eldrum hennar úr landi. Deilt er um túlkun á útlend­inga­lögum og telja for­eldrar Ernu og lög­maður fjöl­skyld­unnar að brott­vísun hennar úr landi brjóti í bága við barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

For­eldrar Ernu, þau Nazife og Erion, komu hingað til lands frá Albaníu og sóttu hér um hæli árið 2015. Þau fengu atvinnu­leyfi hér á landi en var svo vísað úr landi. Skömmu síðar komu þau hingað til lands á nýjan leik og sóttu um dval­ar­leyfi. Umsókn þeirra var hafnað af Útlend­inga­stofnun í febr­úar 2018 og kæru­nefnd útlend­inga­mála stað­festi þá nið­ur­stöðu í júlí síð­ast­liðnum.

Aðal­með­ferð fer fram í dag, en dóms­málið er höfðað með þeim rökum að í 102. grein útlend­inga­laga segi að óheim­ilt sé að vísa útlend­ingi úr landi hafi hann átt hér fasta búsetu frá fæð­ingu sam­kvæmt Þjóðskrá. Lög­heim­ili barna hælils­leit­enda og þeirra sem sótt hafa um dval­ar­leyfi er hins vegar skráð með öðrum hætti en ann­arra barna og þannig var einnig með Ernu. Af þeim sökum telur Útlend­inga­stofnun að umrætt ákvæði eigi ekki við í máli Ernu.

Við þessa nið­ur­stöðu vilja for­eldrar Ernu ekki sætta sig og höfð­uðu því umrætt dóms­mál. Telja þau meðal ann­ars að mis­mun­andi skrán­ing lög­heim­ila bar­ana sé brot á Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, þar sem óheim­ilt sé að mis­muna börnum á grund­velli stöðu for­eldra þeirra. 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár