Kröfunni hafnað – Dómari segir ekkert benda til að Bára hafi átt sér vitorðsmenn

Dóm­kirkju­prestur og skrif­stofu­stjóri Alþingis ekki kall­aðir fyrir dóm vegna fyr­ir­hug­aðs mála­rekst­urs þing­manna gegn Báru Hall­dórs­dóttur.

Kröfunni hafnað – Dómari segir ekkert benda til að Bára hafi átt sér vitorðsmenn

Kröfu fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins um gagna­öflun og vitna­leiðslur fyrir hér­aðs­dómi vegna fyr­ir­hug­aðrar máls­sóknar gegn Báru Hall­dórs­dóttur, sem hljóð­rit­aði sam­skipti þeirra á Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, hefur verið hafnað. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp úrskurð þess efnis rétt fyrir hádegi.

Í úrskurð­inum er bent á að sókn­ar­að­ilar hafi ekki lengur lögvarða hags­muni af því að upp­lýst verði um hver stóð fyrir upp­tök­unni á Klaustri, enda hafi Bára stigið fram og játað á sig þá hátt­semi. Þing­menn­irnir hafi ekki fært við­hlít­andi rök fyrir því að skil­yrðum sé full­nægt til að fram fari vitna­leiðslur og öflun sýni­legra sönn­un­ar­gagna fyrir dómi á grund­velli und­an­tekn­ing­ar­heim­ild í lögum um með­ferð einka­mála.

„Slíkar kenn­ingar og vanga­veltur verða þó að mati dóms­ins að byggj­ast á ein­hverju öðru en því að hlut­að­eig­endur telji þetta eða hitt lík­legt“

Dómarinn, Lár­entsínus Krist­jáns­son, telur rök­stuðn­ing­inn í beiðni þing­mann­anna ekki nógu skýran. „Það markast þó af þeirri aug­ljósu stað­reynd að ekki er vitað hvernig atvikum var háttað eða hvort ein­hverjir aðrir aðilar en varn­ar­að­ili hafi komið að málum, eins og sókn­ar­að­ilar virð­ast telja lík­legt. Slíkar kenn­ingar og vanga­veltur verða þó að mati dóms­ins að byggj­ast á ein­hverju öðru en því að hlut­að­eig­endur telji þetta eða hitt lík­legt án þess að það sé rök­stutt sér­stak­lega og með afmörk­uðum hætti hvers vegna slíkar grun­semdir séu uppi.“ Tekur dóm­ar­inn fram að ekk­ert bendi til þess á þessu stigi máls­ins að Bára Hall­dórs­dóttir hafi átt sér vit­orðs­menn þegar hún hljóð­rit­aði sam­skipti þing­mann­anna á Klaustri. 

Reimar Snæfells Pét­urs­sonlög­maður þing­mann­anna

„Þarna var nú ekki feitan gölt að flá svo við bjugg­umst kannski frekar við þessu,“ segir Ragnar Aðal­steins­son, lög­maður Báru, í sam­tali við Stundina. „En nú liggur fyrir erindi hjá Per­sónu­vernd og þing­menn­irnir hafa boðað að þeir ætli í einka­mál. Svo við bíðum bara og sjáum hvert fram­haldið verður.“ 

Eins og Stundin hefur fjallað um und­an­farna daga vilja þau Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Anna Kolbrún Árna­dóttir og Bergþór Ólason að Bára Hall­dórs­dóttir sæti refs­ingu, greiði þeim miska­bætur og verði sektuð af Per­sónu­vernd vegna ólög­mætrar „njósn­a­að­gerðar“ sem þing­menn­irnir telja sig hafa orðið fyrir á veit­inga­staðnum Klaustri.

Að því er fram kom í bréfi lög­manns þeirra, Reimars Pét­urs­sonar, til hér­aðs­dóms fyrr í mán­uð­inum telja þing­menn­irnir aðgerð­ina hafa falið í sér „sak­næma og ólög­mæta mein­gerð gegn frelsi, friði, æru eða per­sónu“ þeirra.

Kallað var eftir því að fyr­ir­svars­menn og starfs­menn Klaust­urs yrðu leiddir fyrir dóm til vitnis um manna­ferðir og aðstæður á barnum þann 20. nóv­em­ber. Þessari kröfu, sem var gerð vegna und­ir­bún­ings fyr­ir­hug­aðs einka­máls gegn Báru, hefur nú verið hafnað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár