Trúa ekki Báru og vilja vita „hverjir voru með henni“

Lögmaður fjór­menn­ing­anna úr Mið­flokknum segir frá­sögn Báru Hall­dórs­dóttur ótrú­verð­uga og ekki stand­ast skyn­sem­is­skoðun. Þing­menn­irnir vilja að henni verði refsað, hún sektuð af Per­sónu­vernd og látin greiða þeim miska­bætur.

Trúa ekki Báru og vilja vita „hverjir voru með henni“

Þingmenn Mið­flokks­ins telja að Bára Hall­dórs­dóttir, 42 ára öryrki sem hljóð­rit­aði hávær sam­skipti þeirra á Klaustri Bar þann 20. nóv­em­ber, hafi ekki komið hreint til dyr­anna. Frásögn hennar sé ótrú­verðug og „stand­ist ekki skyn­sem­is­skoðun“. 

Þetta kom fram í máli Reimars Pét­urs­sonar, lög­manns þeirra Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, Gunnars Braga Sveins­sonar, Bergþórs Ólasonar og Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur, í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag.

Reimar Pét­urs­sonlög­maður fjór­menn­ing­anna úr Mið­flokknum

Reimar sagði að myndefni úr eft­ir­lits­mynda­vélum, bæði Alþingis og Dóm­kirkj­unnar, ætti að geta varpað skýr­ara ljósi á atburð­ina 20. nóv­em­ber, meðal ann­ars það hvernig Bára hefði  leynt því að hún væri að taka þing­menn­ina upp, hvaða að­ferðum hún beitti og hversu sterkur ásetn­ingur hennar til brots­ins hefði verið. Benti lög­mað­ur­inn á að Bára hefði sagst ekki vera borg­un­ar­maður fyrir greiðslu miska­bóta og því væri „ástæða til að athuga hverjir voru með henni“. 

Fjór­menn­ing­arnir úr Mið­flokknum vilja að Bára sæti refs­ingu og greiði þeim miska­bætur vegna „njósn­a­að­gerðar“ sem þeir telja sig hafa orðið fyrir á Klaustri. Þá hafa þeir kallað eftir því að Per­sónu­vernd sekti Báru. Þetta er ljóst af bréfum sem Reimar Pét­urs­son, lög­maður þing­mann­anna, hefur sent hér­aðs­dómi og Per­sónu­vernd.

Þing­menn­irnir vilja að aflað verði gagna til vitnis um manna­ferðir og aðstæður á Klaustri bar þann 20. nóv­em­ber.

„Skýrslu­taka yfir mann­eskju sem gerð­ist sek um eða tók á sig sök um hlerun er ein­ungis einn liður í nauð­syn­legri gagna­öflun. Við reiknum fast­lega með því að ýmis­legt eigi eftir að koma fram,“ segir í yfir­lýs­ingu sem Mið­flokk­ur­inn birti á Facebook þann 12. des­em­ber síð­ast­lið­inn. 

„Við reiknum fast­lega með því að
ýmis­legt eigi eftir að koma fram“

Á upp­tök­unum af Klaustri heyr­ast þing­menn­irnir tala með niðr­andi og klám­fengnum hætti um konur, hæð­ast að sam­kyn­hneigðum söngv­ara og bar­áttu­konu fyrir rétt­indum fatl­aðra og gorta af því að hafa mis­beitt valdi við skipun sendi­herra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár