Karlar mótmæla lögum um þungunarrof: „Mér finnst það ógeðslegt“

Fimm karlar hafa skilað umsögnum um frumvarp heilbrigðis­ráðherra en engin kona. Birgir Þórarinsson þingmaður Miðflokksins telur frum­varpið stangast á við kristileg gildi: „Er þetta frumvarp hinn sanni jólaandi ríkis­stjórnarinnar?“

Karla og konur greinir stundum á um réttinn til þungunarrofs.
Karla og konur greinir stundum á um rétt­inn til þung­un­ar­rofs. Mynd: Shutterstock

Fimm karlmenn hafa sent velferðar­nefnd Alþingis umsagnir vegna frumvarps Svandísar Svavars­dóttur heilbrigðis­ráðherra til nýrra heildar­laga um þungunarrof og mæla þeir allir eindregið gegn frum­varpinu.

„Mér finnst það ógeðslegt,“ skrifar einn þeirra, tónlistar­maðurinn Jónas Sen og bætir við: „Það stríðir gegn sannfæringu minni um virðingu fyrir mannslífi.“ 

Í frumvarpi Svandísar er lagt til, í samræmi við tillögur ljósmæðra og fæðingar­lækna, að þungunarrof verði leyft fram að 22. viku meðgöngu. Yfirlýst markmið laganna er að tryggja konum sjálfs­forræði og fullt ákvörðunar­vald um hvort þær ala barn fram að þessum tíma, óháð því hvað liggur að baki ákvörðuninni. Eftir lok 22. viku þungunar verði svo heimilt að framkvæma þungunarrof ef lífi þungaðrar konu er stefnt í hættu við áfram­haldandi þungun eða ef fóstur telst ekki lífvænlegt til frambúðar.

Tók dæmi um par, framhjáhald og reiða konu

Frum­varpið var lagt fram 22. nóvember síðastliðinn og virðist nokkuð breið samstaða um meginefni þess.

Þó hafa þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins gagnrýnt harðlega áform um að veita almenna heimild til þungunar­rofs allt til 22. viku. „Það skal tekið fram að við erum ekki að tala um fóstur á þessum tíma heldur ófull­burða barn í móður­kviði,“ sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, í umræðum um málið á þriðjudag. 

„Við skulum taka dæmi sem við þekkjum mjög mikið í samfélaginu. Það er kannski yndislegt par og það á von á barni, en allt í einu kastast í kekki og konan er komin 20 vikur á leið. Þau ætluðu jú að eiga barnið. Það var hamingja. En eitthvað kom upp á, við skulum bara segja kannski fram­hjáhald. Hver hefur ekki heyrt það hugtak? Allt í einu þá verður kona reið og segir nei: Ég ætla ekki að eiga þér barn! Nei. ég vil ekki sjá þetta. Ég ætla að fara í fóstur­eyðingu! Hver er þá réttur barnsins? Hvers vegna tölum við eins og lífið skipti ekki máli?“

Á skjön við kristileg gildi

Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi einnig frum­varpið. „Löggjöf sem í raun gerir hið ófædda líf réttlaust brýtur gegn því grundvallar­sjónarmiði kristindómsins að sérhver einstaklingur eigi rétt til lífs, allt frá upphafi og þangað til að dauðann ber að dyrum með eðlilegum og óviðráðanlegum hætti,“ sagði Birgir og vitnaði meðal annars í ályktun Kirkju­þings frá 1987 máli sínu til stuðnings. „Er þetta frumvarp hinn sanni jólaandi ríkis­stjórnarinnar? Ég styð það ekki. Við Íslendingar þurfum ekki að hafa frjáls­lyndustu löggjöfina um fóstur­eyðingar.“

Frumvarp Svandísar gekk til velferðar­nefndar á þriðjudag og sendi nefndin út tugi umsagna­beiðna í gær, meðal annars til félaga­samtaka, trúfélaga, heilbrigðis­stofnana og fagfólks. Þegar þetta er ritað hafa fimm umsagnir borist og verið birtar á vef Alþingis, en þær eru allar frá körlum. Enginn þeirra lýsir ánægju með frum­varpið. 

„Heimild til deyðingar“

Ólafur Þórisson guðfræðingur er afar harðorður og telur að með frum­varpinu sé verið að heimila manndráp. „Í ofan­greindu frumvarpi, er veitt heimild til deyðingar á lifandi fóstri, til og með 18. viku meðgöngu, þar sem löngu er hafinn vöxtur bæði á höfði og útlimum hins ófædda barns. Þungunarrof felur í sér að bæði höfuð og útlimir hins ófædda barns eru sniðin af. Slíkt ef með öllu óásættanlegt, og felur í sér manndráp á hinu ófædda barni, sem er með öllu ótækt í siðuðu mannlegu samfélagi, og er andstætt grunn­reglum Sameinuðu Þjóðanna, varðandi verndun allra barna, fæddra sem ófæddra,“ skrifar Ólafur. Tekið skal fram að túlkun Ólafs á „grunn­reglum Sameinuðu þjóðanna“ er ekki í takt við þann skilning á sáttmálum Sameinuðu þjóðanna sem er viðtekinn víðast hvar í Evrópu.  

Vill koma á fót embætti umboðsmanns ófæddra barna

Sigurður Ragnarsson gagnrýnir einnig frum­varpið, telur að í greinar­gerð þess skorti umræðu um réttindi ófæddra barna og veltir því upp hvort ef til vill sé tilefni til að koma á laggirnar „embætti umboðs­manns ófæddra barna“. Sigurður furðar sig líka á því að ekki sé litið til Banda­ríkjanna í umfjöllun um löggjöf annarra ríkja sem birtist í greinar­gerð frum­varpsins. 

Svein­björn Gizurarson, prófessor við Lyfjafræði­deild Háskóla Íslands, skilaði velferðar­nefnd ítarlegustu umsögninni og fjallar þar um áhættu­þætti og áhrif fóstur­eyðinga á líf og heilsufar kvenna. „Það er fagleg skoðun undir­ritaðs að það skuli leitast við að láta konur fullklára meðgönguna,“ skrifar hann.

„Afar mikilvægt er að barns­hafandi kona fái ítarlegar upplýsingar um þær aukaverkanir og þær hættur sem fylgja þeirri ákvörðun að binda enda á meðgönguna. Ákvörðun um slíkt meðgöngurof snertir ekki bara móður og föður heldur einnig hinn ófædda einstakling (sem virðist ekki eiga sér talsmann).“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár