Raddir Lífar og Gunnlaugs heyrast í nokkrar mínútur

Björn Ingi Hrafns­son blandar fleiri stjórn­mála­mönnum í Klaust­urs­málið: „Voru átta en ekki sex“.

Raddir Lífar og Gunnlaugs heyrast í nokkrar mínútur

Raddir Lífar Magneu­dóttur borg­ar­full­trúa Vinstri grænna og Gunn­laugs Braga Björns­sonar vara­borg­ar­full­trúa Við­reisnar heyr­ast í nokkrar mín­útur á síð­ustu Klaust­urs­upp­tök­unni sem Stundin hefur undir höndum. 

Björn Ingi Hrafns­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi DV og Pressunnar, greindi frá því á vef sínum Viljanum.is í gær að „stjórn­mála­menn­irnir sem sátu á Klaustur [hefðu verið] átta en ekki sex“. Sagði hann að Líf og Gunn­laugur hefðu setið „drykk­langa stund“ með Mið­flokks­mönnum á Klaustri bar.

Líf og Gunn­laugur brugð­ust við á Facebook og sögð­ust hafa litið við á Klaustri þetta kvöld til að fá sér einn drykk; Sig­mundur Davíð hefði boðið þeim yfir á þing­manna­borðið, þau kastað kveðju á karl­ana en látið sig hverfa skömmu síðar.

Sex þingmanna hittingur

Hljóð­upp­tök­urnar af Klaustri sem Stundin hefur undir höndum eru 3 klukku­stundir og 41 mín­úta á lengd. Þar af taka um 3 klukku­stundir og 38 mín­útur ein­vörð­ungu til sam­tala sex þing­manna, þeirra Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, Gunnars Braga Sveins­sonar,  Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur, Bergþórs Ólasonar, Ólafs Ísleifs­sonar og Karls Gauta Hjalta­sonar. 

Á síð­ustu upp­tök­unni má heyra fleiri raddir í fjarska, meðal ann­ars kven­manns­rödd. Þegar tvær mín­útur eru eftir af upp­tök­unni má greina að konan segir: „Jæja, hefst þá ekki bara inn­rás komm­ún­ism­ans og frjáls­hyggj­unnar.“ Nú liggur fyrir að þetta var Líf, odd­viti Vinstri grænna í borg­inni, en með henni í för var Gunn­laugur vara­borg­ar­full­trúi mark­aðs­hyggju­flokks­ins Við­reisnar. 

Líf og Gunn­laugur heyr­ast tala saman sín á milli í lágum hljóðum. Orðaskil þeirra eru ill­grein­an­leg enda tala Mið­flokks­menn tals­vert hærra en þau og virð­ast afar ölv­aðir þegar hér er komið sögu.

„Við þáðum boðið [að setj­ast við borðið] en átt­uðum okkur fljótt á því að félag­arnir væru ofurölvi og varla sam­ræðu­hæfir,“ skrifar Líf á Facebook. „Við köst­uðum því á þá kveðju og héldum heim á leið grun­laus um allt það sem hafði farið fram fyrr um kvöldið.“ 

Tók ekki eftir Líf

Hér sat Bára og tók sam­skipti þing­mann­anna upp eins og frægt er orðið.

Bára Hall­dórs­dóttir , sem sat skammt frá og tók sam­skipti þing­mann­anna upp, fór út af Klaustri bar að því er virð­ist skömmu eftir að Líf og Gunn­laugur komu inn. Bára kom af fjöllum þegar Stundin bar undir hana grein Björns Inga og sagð­ist ekki hafa tekið eftir Líf Magneu­dóttur.

Aðspurð um málið segir Líf að það sé þvætt­ingur að þau Gunn­laugur hafi setið „drykk­langa stund“ með Gunnari Braga, Sigmundi og Bergþóri. Í mesta lagi hafi þau setið í fáeinar mín­útur á borð­inu. Er þetta í sam­ræmi við frá­sögn Gunn­laugs Braga. „Ég ein­fald­lega for­dæmi orð og mann­hatur þing­mann­anna sex. Þessari aumk­un­ar­verðu til­raun Björns Inga og félaga til að draga okkur Líf inn í þetta ömur­lega mál vísa ég ein­fald­lega bein­ustu leið til föð­ur­hús­anna,“ skrifar Gunn­laugur á Facebook.

Björn Ingi segir í grein­inni á vef Viljans: „Upptökur þær af sam­tali stjórn­mála­mann­anna, sem senda voru þremur fjöl­miðlum í síð­ustu viku, ná ekk­ert til sam­ræðn­anna þegar þau Líf og Gunn­laugur voru sest við borðið. Að minnsta kosti hefur ekk­ert birst af þeim í þeim fjöl­miðlum; DV, Stund­inni og Kvenna­blað­inu sem fengu þær sendar frá heim­ild­ar­manni sem kall­aði sig Marvin.“

Björn Ingi hefur komið víða við í stjórn­málum og við­skiptum. Eftir að hafa yfir­tekið fjölda fjöl­miðla á síð­ustu árum rið­aði Pressu­veldi hans til falls, en var bjargað með fjár­magni frá óþekktum aðila. Þá stofn­aði Björn Ingi Sam­vinnu­flokk­inn fyrir síð­ustu alþing­is­kosn­ingar, en hann rann inn í Miðflokk Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Viljinn.is er nýr vef­mið­ill Björns Inga.

Sem áður segir koma raddir Lífar og Gunn­laugs fyrir í nokkrar mín­útur á umræddum upp­tökum en ekk­ert af því sem þau heyr­ast segja hefur verið metið frétt­næmt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár