Anna Kolbrún þóttist vera þroskaþjálfi og hefur verið tilkynnt til landlæknis

„Þroska­þjálfa­félagið harmar að starfs­heitið þroska­þjálfi hafi verið misnotað með þessum hætti,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

A

nna Kolbrún Árna­dóttir, þingmaður Miðflokksins, kallaði sig þroska­þjálfa á Alþingis­vefnum án þess að hafa hlotið menntun sem þroska­þjálfi né fengið starfs­leyfi frá landlækni. Þetta kemur  fram í yfir­lýsingu frá Þroska­þjálfa­félagi Íslands sem hefur tilkynnt brot Önnu til land­læknis­embættisins.

Anna Kolbrún er einn þeirra þingmanna sem hittust á Klaustri bar þann 20. nóvember síðastliðinn og létu gamminn geysa. Stundin, DV og Kvenna­blaðið hafa fjallað ítarlega um samskiptin sem náðust á hljóð­upptöku.

„Alþingis­maðurinn Anna Kolbrún Árna­dóttir hefur kallað sig þroska­þjálfa í æviágripi sínu á vef Alþingis. Þetta er ekki rétt. ÞÍ hefur stað­festingu frá Land­læknis­embættinu um að þing­maðurinn hafi hvorki hlotið menntun sem þroska­þjálfi né fengið starfs­leyfi frá embættinu,“ segir í yfir­lýsingu Þroska­þjálfa­félags Íslands sem send var fjöl­miðlum í kvöld. Fram kemur að æviágripi þing­mannsins á vef Alþingis hafi nú verið breytt og  starfs­heitið þroska­þjálfi sé ekki lengur nefnt þar.

Þroska­þjálfa­félagið áréttar að starfs­heitið þroska­þjálfi er lögverndað. Samkvæmt íslenskum lögum mega þeir einir nota þetta starfs­heiti sem hlotið hafa til þess menntun, þ.e. þroskaþjálfanám sem er fjögurra ára háskólanám, og fengið starfs­leyfi frá Land­læknis­embættinu. 

„Þroska­þjálfa­félagið harmar að starfs­heitið þroska­þjálfi hafi verið misnotað með þessum hætti enda þótt starfs­heitið sé ekki lengur að finna í æviágripi þing­mannsins. Félagið hefur þegar tilkynnt brotið til Land­læknis­embættisins sem er eftirlits­aðili samkvæmt lögum um heilbrigði­starfsmenn. Í lögunum kemur fram að þeim sem ekki hefur gilt leyfi land­læknis er óheimilt að nota löggilt starfs­heiti eða starfa sem heilbrigðis­starfsmaður. Brot gegn ákvæðum laga um heilbrigðis­starfsmenn og reglna sem settar eru á grund­velli þeirra varða sektum eða fangelsi allt að þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár