Þingkonum misboðið vegna „kvenfyrirlitningar“ karla í valdastöðum

Mikil reiði á Alþingi vegna orð­bragðs sem þing­menn not­uðu við lýs­ingar á sam­starfs­konum sínum. Bergþór Ólason mætti ekki á nefnd­ar­fund í morgun.

Þingkonum misboðið vegna „kvenfyrirlitningar“ karla í valdastöðum

Fundað er á öllum hæðum Alþing­is­húss­ins þessa stund­ina vegna upp­ljóstr­anna Stund­ar­innar um ummæli þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins. Þingmenn sem Stundin hefur rætt við lýsa and­rúms­loft­inu í þing­inu sem svo að mikil reiði og titr­ingur ríki.

Hópur þing­kvenna fund­aði í morgun þar sem ummælin til umræðu, þær Inga Sæland, Oddný G. Harð­ar­dóttir og Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, sem allar voru til umræðu á upp­tök­unum. Þær sendu nú fyrir skemmstu frá sér eft­ir­far­andi yfir­lýs­ingu:

„Ummæli þau sem þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins létu falla 20. nóv­em­ber á Klaustri lýsa skammar­legum við­horfum til kvenna og við lítum þau veru­lega alvar­legum augum.

Það er algjör­lega ólíð­andi að karlar í valda­stöðum sýni slíka kven­fyr­ir­litn­ingu og tjái sig á jafn niðr­andi hátt um konur og sam­kyn­hneigða. Þá skiptir einu hvort um er að ræða póli­tíska and­stæð­inga eða sam­herja.

Ummæli þessi opin­bera við­kom­andi þing­menn og dæma sig sjálf. Hegðun þeirra er ekki til þess fallin að auka virð­ingu almenn­ings á Alþingi eða á stjórn­mála­mönnum og setur sam­starf og trúnað í upp­nám.

Við for­dæmum ummælin og munum óska eftir því að málið verði tekið upp í for­sætis­nefnd.

Að lokum viljum við minna á eft­ir­far­andi siða­reglur sem við þing­menn höfum öll und­ir­geng­ist:

Meg­in­reglur um hátt­erni.
5. gr.
Alþing­is­menn skulu sem þjóð­kjörnir full­trúar:
a. rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika,
b. taka ákvarð­anir í almanna­þágu,
c. ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinni,
d. nýta þá aðstöðu sem þeim er veitt við störf sín með ábyrgum hætti,
e. ekki nýta opin­bera stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra,
f. greina frá öllum hags­munum sem máli skipta og varða opin­bert starf þeirra
og leggja sig fram um að leysa úr árekstrum sem upp kunna að koma með
almanna­hag að leið­ar­ljósi,
g. efla og styðja grund­vall­ar­reglur þessar með því að sýna frum­kvæði og for­dæmi.

Hátt­ern­is­skyldur. 7. gr. Þingmenn skulu í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu.“

Bergþór Ólason, for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis, mætti ekki á boð­aðan fund nefnd­ar­innar í morgun klukkan níu. Bergþór hafði sig mikið í frammi með ljótu orð­færi á hitt­ingi þing­mann­anna á Klaustri bar, þar sem hann meðal ann­ars kall­aði Ingu Sæland „fokk­ing tryllta“ og „húrr­andi klikkað kuntu“. Bergþór mun hafa hringt í Ingu í gær­kvöldi og beðið hana afsök­unar.

Aðrir þing­menn sem komu við sögu á fund­inum á Klaustri mættu sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar til vinnu í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár