Starfsmenn og doktorsnemar á menntavísindasviði mótmæla tanngreiningum á hælisleitendum

Krefjast þess að Háskóli Íslands taki afstöðu með rétt­indum og mann­helgi ung­menna og falli frá samn­ings­gerð við Útlend­inga­stofnun. „Annað er sið­ferð­is­lega óverj­andi.“

Starfsmenn og doktorsnemar á menntavísindasviði mótmæla tanngreiningum á hælisleitendum

49 starfs­menn og dokt­or­snemar á Mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands hafa gefið út yfir­lýs­ingu þar sem tann­grein­ingum á hæl­is­leit­endum er harð­lega mót­mælt og stjórn­endur skól­ans hvattir til að láta af samn­ings­gerð við Útlend­inga­stofnun um slíka starf­semi innan veggja skól­ans. 

Stundin greindi frá því þann 26. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að Útlend­inga­stofnun og háskól­inn ynnu að gerð þjón­ustu­samn­ings um ald­urs­grein­ingar á tönnum hæl­is­leit­enda.

Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands ályktaði gegn samn­ings­gerð­inni og taldi hana sið­ferði­lega óverj­andi. Þann 7. nóv­em­ber lýstu svo Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta yfir stuðn­ingi allra stúd­enta á Íslandi og íslenskra stúd­enta erlendis við afstöðu Stúd­enta­ráðs.

Hópurinn af Mennta­vís­inda­sviði tekur undir þessa afstöðu.

„Und­ir­rit­aðir starfs­menn og dokt­or­snemar á Mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands taka undir yfir­lýs­ingu Lands­sam­bands íslenskra Stúdenta og Stúd­enta­ráðs Háskóla Íslands þar sem tekin er afstaða gegn tann­grein­ingum á hæl­is­leit­endum sem nú fara fram innan Háskóla Íslands. Þá er Háskóli Íslands ein­dregið hvattur til að láta af gerð samn­ings um áfram­hald­andi tann­grein­ingar á aldri hæl­is­leit­enda,“ segir í yfir­lýs­ingu starfs­manna og dokt­or­snema á Mennta­vís­inda­sviði.

„Viljum við sem fag­fólk í mennta­vís­indum, líkt og sam­tök stúd­enta gera, vekja sér­staka athygli háskóla­yf­ir­valda á sam­fé­lags­legu hlut­verki mennta­stofn­ana. Sem slíkri stofnun ber Háskóla Íslands að vernda og styðja ung­menni sem hingað koma í leit að örugg­ara lífi. Þá má benda á að margir fræði­menn innan Háskóla Íslands hafa hluta lífs­við­ur­væris síns af rann­sóknum sem snúa að aðstæðum þessa við­kvæma hóps og því enn mik­il­væg­ara en ella að stofn­unin sem slík taki skýra afstöðu með rétt­indum og mann­helgi ung­menn­anna. Annað er sið­ferð­is­lega óverj­andi. Rauði Kross Íslands ásamt fjöl­mörgum alþjóð­legum stofn­unum og sam­tökum hafa bent á hversu sterk sið­ferð­is­leg rök hníga gegn notkun tann­grein­inga til ald­urs­á­kvörð­unar.“

Stjórnir allra fræðis­viða eru hvattar til að taka afstöðu í mál­inu. „Jafn­framt viljum við beina því til starfs­fólks Háskóla Íslands að láta sig mál­efnið varða,“ segir í yfir­lýs­ing­unni sem er und­ir­rituð af eft­ir­far­andi:

Anh Dao Tran, nýdoktor

Ania Wozniczka, dokt­or­snemi

Anna Kristín Sig­urð­ar­dóttir, pró­fessor

Arna H. Jóns­dóttir, dós­ent

Auður Magndís Auð­ar­dóttir, dokt­or­snemi

Ársæll Arn­ars­son, pró­fessor

Áslaug B. Egg­erts­dóttir, verk­efna­stjóri

Berglind Rós Magn­ús­dóttir, dós­ent

Bjarn­heiður Krist­ins­dóttir, dokt­or­snemi

Charlotte Eliza Wolff, lektor

Elizabeth Lay, dokt­or­snemi

Ellen D. Gunn­ars­dóttir, aðferða­fræð­ingur

Elsa Eiríks­dóttri, dós­ent

Ester Ýr Jóns­dóttir, verk­efna­stjóri

Eva Harð­ar­dóttir, dokt­or­snemi

Eyja M. Brynjars­dóttir, aðjúnkt

Eyrún María Rún­ars­dóttir, dokt­or­snemi

Freyja Har­alds­dóttir, aðjúnkt og dokt­or­snemi

Guðrún Krist­ins­dóttir, pró­fessor emerita

Guðrún Ragn­ars­dóttir, lektor

Gunnar J. Gunn­ars­son, pró­fessor

Gunn­hildur Ósk­ars­dóttir, dós­ent

Hanna Óla­dóttir, aðjúnkt

Hrefna Sig­ur­jóns­dóttir, pró­fessor

Ingi­björg Kalda­lóns, lektor

Ingólfur Gíslason, aðjúnkt og dokt­or­snemi

Ingvar Sig­ur­geirs­son, pró­fessor

Jóhanna Karls­dóttir, lektor

Katrín Johnson, verk­efna­stjóri

Katrín Ólafs­dóttir, dokt­or­snemi og stunda­kenn­ari

Kristian Guttesen, aðjúnkt

Kristján Jóhann Jónsson, dós­ent

Lilja M. Jóns­dóttir, lektor

Oddný Sturlu­dóttir, aðjúnkt og verk­efna­stjóri

Ólöf Garð­ars­dóttir, pró­fessor

Ósk Dags­dóttir, dokt­or­snemi og grunn­skóla­kenn­ari

Ragný Þóra Guðjohn­sen, lektor

Randi W. Stebbins, verk­efna­stjóri

Ruth Jörg­ens­dóttir Rauter­berg, aðjúnkt og dokt­or­snemi

Sigríður Pét­urs­dóttir, deild­ar­stjóri

Sigrún Sif Jóels­dóttir, verk­efna­stjóri

Skúlína Hlíf Kjart­ans­dóttir, aðjúnkt

Sólveig Jak­obs­dóttir, dós­ent

Susan Gollifer, aðjúnkt og dokt­or­snemi

Svanborg Rannveig Jóns­dóttir, dós­ent

Unnur Edda Garð­ar­dóttir, aðjúnkt

Val­gerður S. Bjarna­dóttir, dokt­or­snemi

Þórður Krist­ins­son, dokt­or­snemi

Þuríður Jóhanns­dóttir, dós­ent

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár