Stærsti eig­andi lax­eldis­fyrir­tækisins Arnar­lax er einn ríkasti maðurinn í Noregi

Gustav Magnar Witzøe er einn rík­asti maður Noregs og er jafn­framt stærsti ein­staki hags­muna­að­il­inn í íslensku lax­eldi. Norsk eld­is­fyr­ir­tæki eiga um 84 pró­sent í hlutafé íslenskra lax­eld­is­fyr­ir­tækja, meðal ann­ars Salmar AS sem er fyr­ir­tæki Witzøe.

Stærsti eig­andi lax­eldis­fyrir­tækisins Arnar­lax er einn ríkasti maðurinn í Noregi
Salmar virði 22 millj­arða norskra króna Verðmæti Salmar AS er nú um 22 millj­arðar norskra króna en Gustav Magnar Witzøe er stærsti eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins.

Stærsti eig­andi norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins, sem er stærsti hlut­hafi íslenska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arnarlax, er einn rík­asti maður Noregs og er í þriðja sæti yfir þá efn­uð­ustu í land­inu sem eru yngri en 30 ára gamlir. Þetta kemur fram á nýbirtum listum frá Noregi yfir hæstu skatt­greið­endur í land­inu sem norskir og sænskir fjöl­miðlar hafa síð­ustu daga gert sér mat úr. 

Í fyrra var mað­ur­inn, Gustav Magnar Witzøe, sem ein­ungis er 25 ára gam­all, í efsta sæti yfir rík­ustu Norð­menn­ina undir 30 ára aldri. Gustav Magnar Witzøe er stærsti hlut­hafi norska lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Salmar AS, sem aftur er stærsti hlut­hafi Arnarlax, en faðir hans, sem einnig heitir Gustav Witzøe, stofn­aði Salmar árið 1991. Gustav yngri gengur gjarnan undir nafn­inu „laxa­erf­ing­inn“ í norskum og sænskum fjöl­miðlum. 

Norskir við­skipta­f­rétta­miðlar hafa fjallað um það að verð­mæti Salmar AS sé nú um 22 millj­arðar norskra króna, 320 millj­arða íslenskra króna, og að hluta­bréf fyr­ir­tæk­is­ins hafi tvö­fald­ast …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár