Metfjöldi kæra vegna byrlunar ólyfjanar

78 mál þar sem mann­eskju var byrluð ólyfjan voru bókuð hjá lög­regl­unni í fyrra og er 71 mál skrá það sem af er ári. Fjölgun atvika lík­lega vit­und­ar­vakn­ing frekar en raun­fjölgun, segir ráð­herra. Verk­lags­reglur í þessum málum liggja ekki fyrir.

Metfjöldi kæra vegna byrlunar ólyfjanar

Það sem af er ári hefur 71 mál verið bókað hjá lög­reglu vegna til­vika þar sem ein­stak­lingur telur sér hafa verið byrluð ólyfjan. 78 til­vik voru í fyrra og er það met­fjöldi. Ráðherra telur ákvæði í lögum full­nægj­andi.

Þetta kemur fram í svari Sigríðar Andersen dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata. Spyr hann um til­vik þar sem ein­stak­lingur hefur til­kynnt um brot þar sem honum hefur verið byrlað lyf sem dregur úr með­vit­und hans, sjálf­stjórn eða getu til að taka sjálf­stæðar ákvarð­anir. Í svar­inu kemur fram að ekki sé um stað­festa töl­fræði að ræða þar sem byrlun ólyfjan er ekki skráð í mála­skrár­kerfi lög­reglu sem sér­stakt frum­brot.

„Hafa ber ríkan fyr­ir­vara á þessum tölum,“ segir í svari ráð­herra. „Í fyrsta lagi er alls ekki alltaf um brot að ræða, heldur er leitað til lög­reglu vegna gruns um byrlun án þess að annað brot hafi átt sér stað. Þessi til­vik eru því ekki stað­fest og í raun ekki hægt, með ein­földum hætti, að nálg­ast upp­lýs­ingar úr kerfum lög­reglu um fjölda til­vika þar sem sýni var tekið til að rann­saka mögu­lega byrlun og hver nið­ur­staða þeirrar grein­ingar var. Þá er ekki ljóst hvað veldur fjölgun til­vika á tíma­bil­inu en lík­lega er um að ræða vit­und­ar­vakn­ingu frekar en raun­fjölgun til­vika.“

Ár Fjöldi mála
2007 16
2008 17
2009 21
2010 25
2011 23
2012 32
2013 38
2014 70
2015 63
2016 51
2017 78

Í svar­inu kemur fram að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra liggi ekki fyrir verk­lags­reglur um með­ferð og skrán­ingu þess­ara mála. Embætti lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur gert drög að slíku verk­lagi, þar sem áhersla er lögð á að bæta skrán­ingu þess­ara til­vika, en það hefur ekki verið inn­leitt hjá emb­ætt­inu.

„Ráðherra treystir lög­reglu­yf­ir­völdum til að halda utan um skrán­ingar brota og bregð­ast við til­kynn­ingum í sam­ræmi við lög og reglur,“ segir í svar­inu. „Það er mat ráð­herra að ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga séu full­nægj­andi að því er snertir þá hátt­semi að byrla ein­hverjum ólyfjan,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár