Sjómannafélagi Íslands birt stefna

Kolbrún Garð­ars­dóttir, lög­maður Heið­veigar Maríu Ein­ars­dóttur, hefur lagt fram stefnu á hendur Sjó­manna­fé­lagi Íslands. Málið verður tekið fyrir í félags­dómi á morgun.

Sjómannafélagi Íslands birt stefna
Ólögleg brott­vikn­ing Heiðveig María Ein­ars­dóttir, sjó­maður og við­skipta­lög­maður, hefur stenft Sjó­manna­fé­lagi Íslands fyrir ólög­lega brott­vikn­ingu úr stétt­ar­fé­lagi. Mynd: Davíð Þór

„Málið verður þing­fest á morgun í félags­dómi,“ segir Kolbrún Garð­ars­dóttir, lög­maður Heið­veigar Maríu Ein­ars­dóttur, sjó­manns og við­skipta­lög­fræð­ings, í sam­tali við Stundina. Kolbrún hefur fyrir hönd Heið­veigar lagt fram stefnu á hendur Sjó­manna­fé­lagi Íslands fyrir að hafa með ólög­mætum hætti vikið henni úr félag­inu. Stefnan byggir á því að stjórnin hafi brotið gegn 2. grein laga um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur sem kveður á um að stétt­ar­fé­lög skuli vera opin öllum í hlut­að­eig­andi starfs­grein á félags­svæð­inu. Kolbrún hefur farið fram á flýti­með­ferð í mál­inu enda sé fram­boðs­frestur fyrir þá sem hyggj­ast bjóða sig fram til for­mennsku í félag­inu við það að renna út. 

Kosningum verði frestað

„Við krefj­umst þess að það verði við­ur­kennt að brott­rekstur Heið­veigar hafi verið brot á lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur,“ segir Kolbrún sem fer einnig fram á að það verði við­ur­kennt að breyt­ingar á 16. grein laga Sjó­manna­fé­lags­ins um kjör­gengi hafi verið brot á sömu laga­grein. „Önnur greinin felur í sér rétt manna til þess að vera í félagi og ég tel að greinin verndi líka rétt manna til að vera ekki reknir úr félagi án þess að fyrir því liggi góð rök og mál­efna­legar ástæður,“ segir Kolbrún í sam­tali við Stundina.

„Við krefj­umst þess að það verði við­ur­kennt að brott­rekstur Heið­veigar hafi verið brot á lögum um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur“ 

Hún fer fram á að það verði við­ur­kennt að Heiðveig María sé kjör­geng í félag­inu auk þess sem farið er fram á miska­bætur og að Sjó­manna­fé­lagi Íslands verði gert að greiða sekt sem rennur í rík­is­sjóð. „Ég mun líka fara fram á það við lög­mann þeirra að þeir fresti öllu sem heitir að leggja fram fam­boðs­lista og kosn­ingar til stjórnar og annað slíkt eða þangað til að nið­ur­staða fæst í þetta mál. Mér finnst ein­fald­lega eðli­legt að það sé gert bara á meðan á þessum ágrein­ingi stendur,“ segir Kolbrún.

Sjó­manna­fé­lag Íslands hefur verið mikið í umræð­unni að und­an­förnu, sér­stak­lega eftir að Heiðveig María var gerð brott­ræk þaðan á þeirri for­sendu að hún hefði skaðað hags­muni félags­ins með gagn­rýni sinni. Heiðveig hefur gagn­rýnt stjórn félags­ins harð­lega að und­an­förnu og meðal ann­ars sakað hana um að hafa breytt lögum þess án heim­ildar. Ein þess­ara laga­breyt­inga fól í sér breyt­ingu á kjör­gengi félags­manna sem þurfa nú að hafa verið skráðir í félagið í þrjú ár til þess að geta boðið sig fram til trún­að­ar­starfa. Heiðveig hefur meðal ann­ars bent á að þessi breyt­ing hafi verið gerð til þess að koma í veg fyrir fram­boð hennar til for­manns. Hún fer nú fram á ógild­ingu þess­arar brott­vikn­ingar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár