Hallur Hallsson fékk þrettán milljónir fyrir að rita sögu Sjómannafélags Íslands

Sjó­manna­fé­lag Íslands eyddi rúmum 22 millj­ónum króna í rit­störf á árunum 2014-2015. Greiddu Halli Halls­syni hálfa milljón á mán­uði í 26 mán­uði fyrir að rita sögu félags­ins.

Hallur Hallsson fékk þrettán milljónir fyrir að rita sögu Sjómannafélags Íslands
Mikið verk Hallur Hallsson, fyrrum fjöl­miðla­maður, var feng­inn til þess að skrifa sögu Sjó­manna­fé­lags Íslands, en verk­efnið tók rúm tvö ár.

Sjómanna­fé­lag Íslands fékk Hall Hallsson, rit­höf­und og fyrrum fjöl­miðla­mann, til þess að rita sögu félags­ins í til­efni af hund­rað ára afmæli stétt­ar­fé­lags­ins sem hét áður Sjó­manna­fé­lag Reykja­víkur. Afrakst­ur­inn kom út árið 2015 í bók­inni, Frjálsir menn þegar aldir renna, sem fæst gef­ins á skrif­stofu Sjó­manna­fé­lags Íslands. Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar seg­ist Hallur hafa fengið þrettán millj­ónir króna fyrir verk­efnið.

Að hans sögn fékk hann verk­taka­greiðslur frá Sjó­manna­fé­lagi Íslands fyrir skrifin. Nánar til­tekið hálfa milljón króna á mán­uði í 26 mán­uði eða þrettán millj­ónir alls. Hann seg­ist hafa byrjað á verk­efn­inu árið 2013 og lokið því í ágúst 2015 eða um það bil sem Sjó­manna­fé­lag Íslands varð hund­rað ára. Hallur segir rit­störf hafa staðið yfir á 28 mán­aða tíma­bili en að hann hafi fengið greitt fyrir 26 enda hafi hann tekið sér ein­hver frí inn á milli. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár