Jón Steinar vill að Katrín reki Má úr Seðlabankanum

Fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari kallar eftir því að emb­ætt­is­mönnum í seðla­bank­anum verði vikið frá störfum fyrir að hafa skaðað „starf­andi atvinnu­fyr­ir­tæki í land­inu“.

Jón Steinar vill að Katrín reki Má úr Seðlabankanum

J

ón Steinar Gunn­laugs­son, lög­maður, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari og áhrifa­maður í Sjálf­stæð­is­flokknum, kallar eftir því að Már Guð­munds­son og fleiri emb­ætt­is­menn í Seðla­bank­anum verði látnir víkja vegna nið­ur­stöðu Hæsta­réttar þess efnis að Seðla­bank­anum hafi ekki verið heim­ilt að leggja stjórn­valds­sekt á Samherja árið 2016 vegna meintra brota á reglum um gjald­eyr­is­mál. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri og aðal­eig­andi Samherja, hefur gengið lengra og talað um að Már hljóti að vera „á leið­inni í fang­elsi“.

Jón Steinar fjallar um málið í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag og fer hörðum orðum um aðgerðir Seðla­bank­ans gagn­vart Samherja. Dómur Hæsta­réttar féll á fimmtu­dag­inn, en þar er stað­fest sú nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­víkur að Seðla­bank­inn hafi ekki verið í rétti þegar Samherji var sektaður vegna meintra brota á reglum um skila­skyldu á erlendum gjald­eyri. Ástæðan er sú að áður höfðu átt sér stað bréfa­skipti milli Seðla­bank­ans og Samherja sem mátti skilja sem svo að Seðla­bank­inn hefði end­an­lega fellt niður rann­sókn á meintum brotum. Töldu dóm­stólar að Samherji hefði mátt binda rétt­mætar vænt­ingar við þau skila­boð auk þess sem Seðla­bank­inn hefði ekki sýnt fram á á hvaða grund­velli honum hefði verið heim­ilt að taka málið upp að nýju. 

Jón Steinar bendir á að mála­rekstur Seðla­bank­ans á hendur Samherja hafi staðið yfir allt frá 2012 þegar gerð var hús­rann­sókn á skrif­stofum fyr­ir­tæk­is­ins. Í apríl 2013 kærði svo Seðla­bank­inn Samherja fyrir brot á gjald­eyr­is­reglum en sér­stakur sak­sókn­ari vís­aði mál­inu frá. Sams konar máli Seðla­bank­ans gegn fjórum fyr­ir­svars­mönnum Samherja var svo aftur vísað frá tveimur árum síðar. Loks var bank­inn gerður aft­ur­reka með stjórn­valds­sekt­ina í hér­aðs­dómi í fyrra, og sú ákvörðun nú stað­fest í Hæsta­rétti. 

„Þetta er ein­fald­lega dæmi um mál þar sem hand­hafi opin­bers valds mis­beitir valdi sínu til tjóns fyrir starf­andi atvinnu­fyr­ir­tæki í land­inu,“ skrifar Jón Steinar og bætir því við að Seðla­banka­stjóri beri ábyrgð á „þessi aðför bank­ans“ enda hafi hann sjálfur tekið „beinan þátt“ í henni. „Það fylgir því mikil ábyrgð að stjórna opin­berum stofn­unum sem fengnar eru heim­ildir til að beita borg­ara valdi þeim til tjóns. Þegar svo hrapal­lega tekst til sem hér er raunin hljóta þeir sem ábyrgð bera á aðför stofn­unar að gjalda fyrir með starfi sínu. Um það ætti ekki að þurfa neinar mála­leng­ingar,“ skrifar hann.

Loks beinir Jón Steinar spjótum sínum að Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra vegna ummæla hennar um að dóm­ur­inn hafi ekki áhrif á stöðu seðla­banka­stjóra. „Samkvæmt lögum skipar sá ráð­herra banka­stjór­ann til starfa og ætti því að víkja honum úr starfi vilji hann ekki víkja sjálfur,“ skrifar Jón og bætir því við að málið sé dæmi um „þá spill­ingu sem ríkir á Íslandi við með­ferð opin­bers valds“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár