90 milljóna skuld DV breytt í hlutafé

Hluta skuldar Frjálsrar fjöl­miðl­unar, rekstr­ar­fé­lags DV, við móð­ur­fé­lag sitt var breytt í hlutafé. Eig­and­inn hefur ekki viljað gefa upp hver lán­aði 475 millj­ónir til kaupa og rekst­urs félags­ins.

90 milljóna skuld DV breytt í hlutafé
Sigurður G. Guð­jóns­son

Frjáls fjöl­miðlun, sem rekur meðal ann­ars DV og fleiri fjöl­miðla, hefur breytt 90 millj­ónum af 425 millj­óna króna skuld sinni við móð­ur­fé­lag sitt í hlutafé. Þetta stað­festir Sigurður G. Guð­jóns­son, lög­maður og eig­andi Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Ekki hefur verið gefið upp hver lán­aði móð­ur­fé­lag­inu Dalsdal ehf. 475 millj­ónir króna til kaupa og rekst­urs fjöl­miðl­anna.

Hlutaféð nemur nú alls 120,5 millj­ónum króna og er alfarið í eigu Dalsdals, félags Sigurðar. Samkvæmt árs­reikn­ingi Frjálsrar fjöl­miðl­unar ehf. var eigið fé nei­kvætt um rúmar 13 millj­ónir króna síð­ustu ára­mót.„Það er aldrei gott að reka félög með nei­kvæðu eigið fé,“ segir Sigurður. „Dals­dalur bara breytti skuld í hlutafé.“

Sigurður hefur ekki viljað upp­lýsa um hvaða aðilar veittu Dalsdal 475 millj­óna króna lán til að fjár­magna rekstur DV og ann­arra fjöl­miðla. Frjáls fjöl­miðlun keypti DV haustið 2017 af fjöl­miðla­veldi Björns Inga Hrafns­sonar og með því vef­miðl­ana Pressuna, Eyjuna, 433.is, Bleikt auk fleiri miðla.

Samkvæmt árs­reikn­ingum 2017 lán­aði …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Eignarhald DV

Skuldirnar út af fjölmiðlaævintýri Björgólfs Thors komnar yfir milljarð
FréttirEignarhald DV

Skuld­irnar út af fjöl­miðla­æv­in­týri Björg­ólfs Thors komnar yfir millj­arð

Sigurður G. Guð­jóns­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og eig­andi Dalsdals ehf., segir að unnið sé að upp­gjöri félags­ins sem var milli­liður í við­skiptum með hluta­bréf í DV. Engar nýjar fjár­fest­ingar hafa verið gerðar í félag­inu og eini lán­veit­andi þess er fjár­fest­ing­ar­fé­lags Björg­ólfs Thors. Enn á huldu af hverju Björgólfur fjár­magn­aði rekstur DV.
Novator sagði ósatt um lán til Frjálsrar fjölmiðlunar í rúm tvö og hálft ár
FréttirEignarhald DV

Novator sagði ósatt um lán til Frjálsrar fjöl­miðl­unar í rúm tvö og hálft ár

Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Novator, sem er í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, veitti fjöl­miðlum ítrekað rangar upp­lýs­ingar um 745 lán fyr­ir­tæk­is­ins til fjöl­miðla­fyr­ir­tækis. Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­trúi Novator, hætti þar í jan­úar. Andrés Jónsson segir að eitt það versta sem komið getur fyrir almanna­tengil sé að segja fjöl­miðlum ósatt.
Neituðu því að Björgólfur væri bakhjarl DV:  „Lítið um skjalfestar heimildir fyrir því sem ekki er“
FréttirEignarhald DV

Neituðu því að Björgólfur væri bak­hjarl DV: „Lítið um skjal­festar heim­ildir fyrir því sem ekki er“

Eigandi DV vildi ekki greina frá því hver lán­aði félagi sínu tæpan hálfan millj­arð til að fjár­magna tap­rekstur. Talskona Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar neit­aði því að hann væri lán­veit­and­inn. Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur birt upp­lýs­ing­arnar vegna sam­runa eig­enda DV og Frétta­blaðs­ins. Þar kemur í ljós að Björgólfur Thor stóð að baki útgáf­unni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár