30 milljörðum hærri arðgreiðslur til eigenda fyrirtækja

Gögn frá Hag­stof­unni sýna að arð­greiðslur við­skipta­hag­kerf­is­ins juk­ust um 26% á milli ára. Fyr­ir­tækin greiddu eig­endum sínum 143 millj­arða króna í arð árið 2017.

Samtök atvinnulífsins
Samtök atvinnu­lífs­ins Arð­greiðslur juk­ust um 26% á milli ára. Mynd: Samtök atvinnulífsins

Arð­greiðslur fyr­ir­tækja í við­skipta­hag­kerf­inu juk­ust um 26% á milli áranna 2016 og 2017. Fyr­ir­tækin sem um ræðir greiddu eig­endum sínum 143 millj­arða króna í arð árið 2017. Þetta kemur fram á vef Hag­stof­unnar í dag.

Við­skipta­hag­kerfið er hug­tak sem nær yfir allan fyr­ir­tækja­rekstur á Íslandi fyrir utan lyfja­fram­leiðslu, fjár­mála- og vátrygg­inga­starf­semi og opin­bera starf­semi. 39.000 fyr­ir­tæki eru í þessum hópi og starfa 124 þús­und laun­þegar hjá þeim sam­kvæmt flokkun Hag­stof­unnar.

Mest aukn­ing arð­greiðslna var í heild­verslun, þar sem þær hækk­uðu um 66% á milli ára, og í bygg­ing­ar­iðn­aði, þar sem hækk­unin var 58%. Fyr­ir­tæki í við­skipta­hag­kerf­inu greiddu eig­endum sínum 113 millj­arða króna í arð árið 2016, en 143 millj­arða árið 2017.

Þá kemur fram að eigið fé fyr­ir­tækj­anna hafi hækkað um 6% á milli ára, úr 2.812 millj­örðum króna árið 2016 í 2.993 millj­arða árið 2017. Mesta hækkun eigin fjár var 30% í bygg­ing­ar­iðn­aði og mann­virkja­gerð, en eigið fé hækk­aði um 10% í greinum ferða­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár