„Það mátti aldrei tala við Heiðu um hvað hún væri veik“

Heiða Dís Ein­ars­dóttir lést úr leg­hálskrabba­meini aðeins 23 ára gömul. Veik­indin drógu hana til dauða á aðeins tveimur árum. Faðir Heiðu segir hana hafa lagt allt of mikið upp úr því að hlífa aðstand­endum sínum.

„Það mátti aldrei tala við Heiðu um hvað hún væri veik“
Vildi hlífa sínum nán­ustu „Það mátti ekki tala um dauð­ann við hana - þetta var orðið að leik­riti. Við sögðum stelp­unum okkar hvað væri að ger­ast og hvernig Heiða yrði alltaf veik­ari og veik­ari þangað til að hún myndi deyja. Á meðan sagði Heiða stelp­unum annað og var að skipu­leggja hluti sem hún ætl­aði að gera með þeim árið 2013,“ segir Einar faðir Heiðu Dísar. Mynd: Úr einkasafni

Heiða Dís Ein­ars­dóttir lést úr leg­hálskrabba­meini 23 ára gömul haustið 2012. Hún hafði farið í leg­hálskrabba­meins­leit eins og konum er ráð­lagt að gera reglu­lega og hafði sýnið verið hreint í nóv­em­ber 2010. Gerðir voru heim­ilda­þættir um Heiðu Dís og bar­áttu hennar bæði hér á landi og í Danmörku þar sem hún bjó. Hún vildi vekja athygli stúlkna og kvenna á nauð­syn þess að fara reglu­lega í leg­hálskrabba­meins­leit. Faðir hennar, Einar Hólm Jónsson, leggur áherslu á það sama og bendir á að það sé minna mál að fara í skoðun heldur en að grein­ast með krabba­mein og upp­lifa þær kvalir og þá sál­ar­ang­ist sem dóttir hans þurfti að gera.

Heiða fædd­ist á Akureyri 15. ágúst árið 1989 og lést í Danmörku haustið 2012. Hún var 23 ára. Heiða var elsta dóttir Einars Hólm Jóns­sonar en hann og móðir Heiðu eign­uð­ust saman tvær dætur. Leiðir þeirra skildu og síðar eign­að­ist Einar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár