Sonja Ýr Þorbergsdóttir nýr formaður BSRB

Lög­fræð­ingur BSRB var kjör­inn nýr for­maður sam­tak­anna í dag, en frá­far­andi for­maður gaf ekki kost á sér.

Sonja Ýr Þorbergsdóttir nýr formaður BSRB
Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir Nýr for­maður BSRB hefur starfað sem lög­fræð­ingur sam­tak­anna.

Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, lög­fræð­ingur BSRB, var kos­inn for­maður félags­ins á þingi félags­ins í dag. Vésteinn Val­garðs­son, stuðn­ings­full­trúi á Kleppi, var einnig í fram­boði, en frá­far­andi for­maður, Elín Björg Jóns­dóttir, til­kynnti í byrjun sum­ars að hún gæfi ekki kost á sér.

Sonja hlaut 86,3 pró­sent atkvæða þing­full­trúa en Vésteinn 13,7 pró­sent. „Ég hlakka til að takast á við þau fjöl­breyttu verk­efni sem framundan eru,“ sagði Sonja í ávarpi til þings­ins. „Hér á þingi BSRB höfum við mótað í sam­ein­ingu skýra sýn í stefnu og álykt­unum sem við munum fylgja kröft­ug­lega eftir. Ég er sann­færð um að saman munum við stuðla að breyt­ingum og betra sam­fé­lagi fyrir okkar félags­menn, í vinnu sem einka­lífi.“

BSRB eru stærstu sam­tök opin­berra starfs­manna á Íslandi. Aðild­ar­fé­lög eru 25 tals­ins og fjöldi félags­manna rúm­lega 21 þús­und. Samkvæmt drögum að stefnu félags­ins sem rædd verða á þing­inu verður lögð áhersla á stytt­ingu vinnu­vik­unnar, bætta stöðu tekju­lágra fjöl­skyldna og nýt­ingu skatt­kerf­is­ins sem jöfn­un­ar­tækis, meðal ann­ars.

„Það verður aldrei sátt í okkar sam­fé­lagi á meðan bætt kjör og betri lífs­gæði eiga bara við um suma en ekki alla,“ sagði Elín Björg, frá­far­andi for­maður, í opn­unará­varpi þings­ins á mið­viku­dag. „Þar skiptir máli að við getum staðið saman til að þrýsta á um þær breyt­ingar sem við teljum að muni bæta sam­fé­lagið og vinna að sam­eig­in­legum skiln­ingi allra aðila vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­valda. Við þurfum að bera gæfu til þess að nýta þann mikla sam­taka­mátt sem býr í íslensku launa­fólki til að bæta sam­fé­lagið allt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár