Treystir ekki kerf­inu Snemma í vor skall­aði barns­faðir Þóru hana fyrir framan son þeirra og vini hans á körfu­bolta­æf­ingu. Ítrek­aðar til­raunir til að fá mark­vissa aðstoð, hvort sem var frá sýslu­manni, barna­vernd­ar­yf­ir­völdum eða lög­reglu, í kjöl­far þess atviks, báru lít­inn árangur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Flúði land vegna stöðugrar áreitni fyrrverandi maka

Hvers vegna er réttur þess sem áreitir meiri en þeirra sem eru áreittir í íslensku lagaum­hverfi? Að þessu hefur Þóra Björk Ottesen ítrekað spurt sig á und­an­förnum árum. Hún er farin af landi brott með tíu ára son sinn vegna stöðugs áreitis frá fyrr­ver­andi maka. Hún segir kerfið hafa marg­brugð­ist þeim mæðginum og ein­kenn­ast af full­komnu úrræða­leysi.

Tvisvar sinnum með átta ára milli­bili hefur barns­faðir Þóru Bjarkar Ottesen, Gary Clarke, beitt grófu ofbeldi í sam­skiptum við hana og fjöl­skyldu hennar. Það gerð­ist fyrst í kjöl­far þess að Þóra tók ákvörðun um að binda enda á sam­bandið. Þá tók hann hana háls­taki á heim­ili þeirra og hót­aði henni líf­láti. Sonur þeirra, tveggja ára, varð vitni að aðför­unum sem Þóra þakkar að ekki fór verr, því hann hafi beðið pabba sinn að hætta. Þóra flúði þá heim til for­eldra sinna með dreng­inn. Nokkrum vikum seinna birt­ist hann þar, braust þar inn og gekk í skrokk á föður Þóru, svo stórsá á honum. Eftir nálg­un­ar­bann, umgengni aðra hverja helgi sam­kvæmt úrskurði sýslu­manns og stopul en oft erfið sam­skipti um átta ára skeið end­ur­tók sagan sig í sumar, þegar Gary skall­aði Þóru, fyrir framan son hennar og vini hans á körfu­bolta­æf­ingu. Ítrek­aðar til­raunir til að fá mark­vissa aðstoð, hvort sem var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár