Kannast ekki við að þingmenn hafi fengið óhóflegar akstursgreiðslur

Helgi Bernódusson skrif­stofustjóri Alþingis kannast ekki við að þingmenn hafi fengið ferða­kostnað endur­greiddan umfram það sem leyfilegt var.

Kemur af fjöllum
Kemur af fjöllum „Ég kann­ast ekki neinar "óleyfi­legar eða óhóf­legar end­ur­greiðslur þing­far­ar­kostn­aðar á und­an­förnum árum",“ segir Helgi. Mynd: Pressphotos.biz

Helgi Bernódusson, skrif­stofustjóri Alþingis, kannast ekki við að þingmenn hafi fengið hærri endur­greiðslur á undan­förnum árum heldur en reglur um þingfarar­kostnað gera ráð fyrir. „Ég kannast ekki neinar „óleyfilegar eða óhóflegar endur­greiðslur þingfarar­kostnaðar á undan­förnum árum“,“ segir hann í svari við fyrir­spurn Stundarinnar um hvort komið hafi til álita að þingmenn verði beðnir um að endur­greiða fjármuni sem þeir fengu í trássi við reglur sem þeir höfðu skuld­bundið sig til að fylgja. 

Í febrúar á þessu ári kom í ljós að þrír þingmenn sem notuðust við eigin bifreiðar fengu meira en 30 þúsund kílómetra aksturs­kostnað endur­greiddan frá Alþingi árið 2017 þrátt fyrir að reglur forsætis­nefndar um þingfarar­kostnað kvæðu á um að þingmenn sem ækju meira en 15 þúsund kílómetra á ári í starfi sínu skyldu notast við bíla­leigubíl. Eins og Stundin benti á eru siða­reglur þingmanna afdráttar­lausar um að þingmenn skuli „sjá til þess að endur­greiðsla fyrir útgjöld þeirra sé í fullkomnu samræmi við reglur sem settar eru um slík mál.“ 

Alls fóru átta þingmenn yfir 15 þúsund kílómetra markið á eigin biðfreið, en Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, keyrði mest, neitaði að þiggja bíla­leigubíl og fékk samtals 4,6 milljóna aksturs­kostnað endur­greiddan eftir að hafa ekið um 48 þúsund kílómetra. Þá viðurkenndi hann að hafa rukkað Alþingi fyrir aksturs­kostnaði vegna prófs­kjörs­baráttu sinnar og þátta­gerðar fyrir ÍNN. Þegar Stundin spurði Helga um málið sagði hann að það væri í höndum þingmanna sjálfra að meta hvað væri eðlilegt í þessum efnum. 

Þrátt fyrir að hafa skuld­bundið sig til að fylgja siða­reglum þar sem kveðið er á um að gæta skuli full­komins samræmis við reglur um þingfarar­kostnað hafa flokks­félagar Ásmundar á Alþingi hæðst að umræðunni um aksturs­greiðslurnar.

Umræðan um umgengni þingmanna við endur­greiðslu­kerfið var hávær fyrri hluta ársins en koðnaði svo niður. Stundin sendi yfir­stjórnendum þingsins fyrir­spurnir um málið á dögunum. Sagðist Helgi Bernódusson ekki kannast við „neinar „óleyfilegar eða óhóflegar endur­greiðslur þingfarar­kostnaðar á undan­förnum árum““. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Akstursgjöld

Fréttir

Siðanefnd: Þórhildur Sunna „skaðaði ímynd“ Alþingis með ummælum um Ásmund

Forsætis­nefnd vildi ekki láta kanna hvort Ásmundur Friðriksson hefði brotið siða­reglur þegar hann fékk endur­greiddan aksturs­kostnað langt umfram það sem reglur um þingfarar­kostnað gera ráð fyrir. Hins vegar vísaði forsætis­nefnd kvörtun Ásmundar undan Þórhildi Sunnu og Birni Leví til siða­nefndar Alþingis – og nú hefur siða­nefndin komist að þeirri niður­stöðu að Þórhildur Sunna hafi brotið siða­reglur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár