Hvað gerist ef WOW fer í þrot?

Ef flug­fé­lag­inu tekst ekki að fjár­magna sig með skulda­bréfa­út­boði gætu kröfu­hafar tekið það yfir eða ríkið komið til bjargar. Þórólfur Matth­í­as­son, hag­fræði­pró­fessor segir að gjald­þrot félags­ins myndi ekki valda kerf­is­hruni en þó hafa í för með sér aukna verð­bólgu, atvinnu­leysi og hærri hús­næð­is­lán.

Hvað gerist ef WOW fer í þrot?
Skúli bjart­sýnn Skúli Mogensen, for­stjóri og eini eig­andi WOW air, seg­ist bjart­sýnn á að takast megi að ljúka skulda­bréfa­út­boði til að tryggja fjár­mögnun flug­fé­lags­ins. Ef það hins vegar tekst ekki, og félagið fer í þrot, mun það hafa umtals­verðar afleið­ingar í for með sér fyrir íslenskt efna­hags­líf. Mynd: WOWAIR.IS

Færi flug­fé­lagið WOW air í þrot þyrfti það ekki að hafa kata­st­rófískar afleið­ingar fyrir efna­hags­lífið. Það hefði hins vegar ýmis nei­kvæð áhrif. Ef vel er haldið á spil­unum eru ýmis kort á hendi sem mætti nota til að koma í veg fyrir mikil áföll, til að mynda sterkur gjald­eyr­is­vara­sjóður. Þrot WOW air myndi engu að síður valda sam­drætti í ferða­þjón­ustu, sam­drætti í gjald­eyr­is­tekjum, atvinnu­leysi og auk­inni verð­bólgu. Með því myndu verð­tryggð lán heim­il­anna hækka en ekki er hægt að full­yrða að Seðla­bank­inn myndi sjá sig knú­inn til að hækka stýri­vexti. Þá myndu for­sendur fjár­laga­frum­varps og fjár­mála­á­ætl­anir bresta og gera þyrfti ein­hverjar lag­fær­ingar í þeim efnum. 

Þórólfur Matth­í­as­sonHag­fræði­pró­fessor segir að fall WOW air myndi hafa tölu­verð áhrif á íslenskt efna­hags­líf en þau áhrif þurfi þó ekki að vera kata­st­rófísk.

Þetta er mat Þórólfs Matth­í­as­sonar, hag­fræði­pró­fess­ors við Háskóla Íslands, en Stundin fékk Þórólf til að kasta á loft sviðs­myndum um hvað gæti gerst ef flug­fé­lag­inu WOW air tekst ekki að fjár­magna sig með skulda­bréfa­út­boð­inu sem nú stendur yfir. Áður hefur verið greint frá því að lausa­fjár­staða félags­ins sé orðin veru­lega veik og það sé félag­inu lífs­spurs­mál að afla fjár til rekstr­ar­ins.

Upp­haf­lega var stefnt að því að afla á bil­inu sex til tólf millj­arða króna með skulda­bréfa­út­boð­inu og átti það að ger­ast til­tölu­lega hratt, fjár­mögn­un­inni átti að ljúka öðru hvoru megin við síð­ustu helgi. Af því varð ekki og hafa borist fréttir af að erf­iðar gangi að afla fjár­ins en von var á. Meðal ann­ars af þeim sökum mun WOW air hafa leitað til íslensku bank­ana með þátt­töku í fjár­mögn­un­inni en talið er nán­ast úti­lokað að þeir muni taka þátt í því.

Tekur ekki nema viku að drepa flugfélag

Skúli Mogensen, for­stjóri og eini eig­andi WOW air ber sig þrátt fyrir allt þetta vel. Í tölvu­pósti sem hann sendi starfs­fólki WOW air kemur fram að hann hafi unnið dag og nótt við að klára útboðið og að hann sjái til lands í þeim efnum og hafi fulla trú á að það muni takast.

En hvað ger­ist ef Skúla tekst það ekki? Hvað ger­ist ef WOW air nær ekki að fjár­magna sig?

Þórólfur segir að stóra spurn­ingin þá sé hvort ein­hver taki félagið í fangið við slíkar aðstæður. „Það er mjög dýrt að láta flug­fé­lag stoppa þannig að það er spurn­ing um hvort að þeir sem eiga kröfur á félagið vilji koma í veg fyrir það og hvort að kröfu­hafar taki stjórn­ina og yfir­taki félagið, hvort heldur sem er í sam­starfi við núver­andi stjórn­endur eða með því að setja þá til hliðar. Ef félagið stoppar þá þarf að gera upp við fullt af kúnnum sem ekki fá þá þjón­ustu sem þeir voru búnir að kaupa og svo þýðir það trún­að­ar­brest gagn­vart sölu­kerf­inu, sem er afar slæmt. Það er í raun­inni hægt að drepa stórt flug­fé­lag á viku, ef starf­semi þess stöðvast í viku, alveg sama af hvaða orsökum, þá fara allir kúnn­arnir annað. Þú kaupir flug­miða til að vera á ákveðnum stað á ákveðnum tíma og ef það stenst ekki þá hættir þú við­skiptum við við­kom­andi félag.“

Spurningin er hvort viðskipamódelið gangi upp

Þórólfur segir að í þessum efnum sé grunn for­sendan sú hvort talið sé að við­skipta­módel WOW air geti gengið upp. „Ef menn telja vera eitt­hvað verð­mæti í því við­skipta­mód­eli sem WOW air keyrir á, leiða­kerf­inu, við­skipta­manna­kerf­inu, sölu­kerf­inu og svo fram­vegis, þá er mjög sterkur hvati fyrir eig­endur skulda WOW air að halda fyr­ir­tæk­inu gang­andi. Ef hins vegar við­skipta­líkanið gengur ekki upp, ef það er ástæðan fyrir því að fyr­ir­tækið sé að rúlla, þá getur vel verið að bútar úr fyr­ir­tæk­inu séu verð­meiri heldur en heildin, og þá fer félagið bara í þrot. Eigendur flug­vél­anna hirða þær til sín og svo fram­vegis.“

Ef WOW air fellur er ólík­legt að önnur flug­fé­lög geti fyllt upp í tóma­rúmið sem mynd­ast; að minnsta kosti ger­ist slíkt ekki á einni nóttu.

„Icelandair mun vænt­an­lega bæta við ein­hverjum ferðum, til að taka upp slak­ann. Það er hins vegar ólík­legt að þeir yfir­taki leigu­samn­ing­ana á flug­vélum WOW air, þetta er öðru vísi flug­floti en þeir reka. Vandinn við það að önnur félög komi inn á það pláss sem myndi mynd­ast við fall WOW er ekki endi­lega skortur á vilja, þekk­ingu eða getu, heldur vöntun á flug­flota. Það er líka svo að það er eig­in­lega bara Icelandair sem gæti komið í stað­inn, með því að bæta við sig, því að það og WOW eru einu félögin sem eru að nota Keflavík sem „hub“, tengiflug­völl, það er ekk­ert annað flug­fé­lag sem er að því. Hin flug­fé­lögin eru að fljúga hingað og héðan, en nota ekki Keflavík sem milli­lend­ingu. SAS er að flytja sína far­þega vestur um haf í gegnum Kaup­manna­höfn og gegnum Arlanda í Stokk­hólmi. Luft­hansa notar Frank­furt, og svo fram­vegis,“ segir Þórólfur.

Gæti fækkað ferðamönnum um 15 prósent í einu vetfangi

En hvaða áhrif mun það hafa á íslenskt efna­hags­líf í heild sinni ef WOW fellur? Til þess að leggja mat á það þarf að gefa sér ýmsar for­sendur bendir Þórólfur á, ekki sé unnt að vinna með harðar tölu­legar stað­reyndir í þeim efnum. „Gefum okkur að mark­aðs­hlut­deild WOW air í flutn­ingum far­þega hingað til lands sé um 30 pró­sent og að helm­ingur far­þeg­anna séu tengifar­þegar, þá er hægt að gera ráð fyrir fækkun ferða­manna til landsin um 15 pró­sent í einu vet­fangi. Þetta eru tölur sem eru ekki ólík­legar, mögu­lega jafn­vel aðeins van­á­ætl­aðar. Það fyrsta sem þetta myndi þýða er að Kefla­vík­ur­flug­völlur yrði orð­inn of stór, miðað við þörf. Fyrsta fyr­ir­tækið sem myndi því lenda í vand­ræðum yrði Isavia. Ekki er nóg með að flug­völl­ur­inn yrði þá orð­inn tals­vert of stór heldur er Isavia líka í stækk­un­arfasa sem þyrfti þá að stöðva. Það er hugs­an­legt að Isavia væri þá komin með í fangið ein­hverjar fjár­skuld­bind­ingar sem þyrfti þá mögu­lega að taka frá rík­inu til að borga af, enda er fyr­ir­tækið að fullu í eigu rík­is­ins. Þetta yrðu fyrstu áhrifin.“

Myndi fækka ferða­mönnumEf WOW air myndi falla myndi ferða­mönnum sem hingað koma fækka umtals­vert.

Ef spár um komur ferða­manna til lands­ins í ár ganga eftir gætu þeir orðið um 2,5 milljón manns. Færi WOW air í þrot gæti sam­dráttur í fjölda ferða­manna orðið allt að 375 þús­und manns ef fækk­unin yrði 15 pró­sent. Þórólfur segir að þrátt fyrir að sú tala sé mjög há þá þýði slíkur sam­dráttur ekki endi­lega hrun. „Tíu til fimmtán pró­senta sam­dráttur í fjölda ferða­manna þyrfti ekki að valda því að hér færi allt á hlið­ina. Það er hins vegar spurn­ing hvaðan þeir ferða­menn væru að koma, hvort það væru lakar borg­andi eða betur borg­andi hlut­inn. WOW hefur lagt tölu­verða áherslu á Banda­ríkja­flugið þannig að það er mögu­legt að þar myndi draga tals­vert úr, og þetta væru því betur borg­andi ferða­menn í meira mæli en ann­ars. Þá hefði þessi sam­dráttur sann­ar­lega ein­hver áhrif hér inn­an­lands. Í stað­inn fyrir að sjá veru­lega aukn­ingu frá ári til árs myndi þetta þýða tíu til fimmtán pró­sent sam­drátt í ferða­mönnum sem koma inn til lands­ins.“

Aukið atvinnuleysi

Um þrettán pró­sent af þeim sem starfa á íslenskum vinnu­mark­aði starfa í ferða­þjón­ustu sam­kvæmt Hagstofu Íslands. Þá starfa um 1.100 manns hjá WOW air. Fall fyr­ir­tæk­is­ins gæti því haft tals­verð áhrif í ferða­þjón­ust­unni. „Þetta gæti þýtt að ein­hver tvö til þrjú pró­sent þeirra sem vinna við ferða­mennsku gætu misst vinn­una. Það er raunar svo að tals­verður fjöldi þeirra sem vinna við ferða­þjón­ust­una eru erlent vinnu­afl og ég myndi ætla að það væru einkum þeir sem fyrst myndu missa vinn­una. Af þeim sökum myndi þetta hafa minni áhrif í atvinnu­legu til­liti hér á landi heldur en ætla mætti fljótt á litið. Við myndum sjá ein­hverja aukn­ingu í atvinnu­leysi við þetta,“ segir Þórólfur.

Rekja má tals­verðan hluta hækk­unar á hús­næð­is­verð síð­ustu ára til útleigu til ferða­manna í gegnum Airbnb, að því er kemur fram í gögnum Seðla­bank­ans frá því snemma á þessu ári. Því gæti fall Wow Air haft áhrif á hús­næð­is­mark­að­inn að mati Þórólfs. „Bæði vegna þess að ferða­mönnum sem leigja hús­næði í gegnum AirBnb myndi fækka veru­lega en auk þess myndi erlenda starfs­fólk­inu sem vinnur í geir­anum fækka. Hins vegar er ekki hægt að full­yrða að hús­næð­is­verð myndi falla, það er eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingur á hús­næð­is­mark­aði og það myndi því taka nokkurn tíma áður en eigna­verð myndi falla, þar eð það mark­að­ur­inn gæti áfram tekið við eignum til sölu. Auðvitað eru ein­hverjir sem hafa verið að sanka að sér hús­næði til AirBnb leigu, og það er spurn­ing um hversu hratt þeir myndu selja frá sér eignir.“

Seðlabankinn í stöðu til að bregðast við

Spurður hvort að ekki megi gera ráð fyrir áhrifum á gengi krón­unnar ef félagið færi í þrot segir Þórólfur að þau áhrif hafi í raun þegar komið fram, síð­ustu daga. „Senni­lega er hluti af geng­is­fall­inum þegar komið fram, þannig að það er ekki víst að við myndum horfa upp á frek­ari geng­is­breyt­ingar. Þó verðum við að hafa þann fyrir vara á að vegna þess að engar útflæðis­tak­mark­anir eru til staðar á gjald­eyri þá gæti það gerst ef inn­lendir fjár­magns­eig­endur misstu trúna á krón­unni og flyttu fé út í stórum stíl, mark­aðs­að­ilar á gjald­eyr­is­mark­aði hafa til­hneig­ingu til að bregð­ast við umfram til­efni, þá gæti reynt tals­vert á vilja Seðla­bank­ans til að synda gegn straumnum. Seðla­bank­inn mun hins vegar bregð­ast við, hann er í stöðu til þess og mun gera það, til dæmis með því að kaupa krónur. Hann gæti líka lagt á útflæð­is­höft, end­ur­vakin gjald­eyr­is­höft, ef í óefni færi.“

Verðbólga ykist og verðtryggð lán myndu hækka

Verð­bólga mun hins vegar örugg­lega aukast fari WOW air í þrot, eina spurn­ingin er hversu mikið að mati Þórólfs, sem telur ekki endi­lega lík­legt að Seðla­bank­inn muni hækka stýri­vexti vegna þess. „Það er ekki alveg gefið að Seðla­bank­inn myndi þurfa að hækka stýri­vexti við þetta, með auk­inni verð­bólgu. Ef hlut­irnir færu á þennan veg myndi það skapa slaka í hag­kerf­inu sem gæti komið í stað þess. Verð­bólga mun hins vegar áreið­an­lega hækka þannig að vísi­tölu­þátt­ur­inn í verð­tryggðum lánum mun þyngj­ast. Ef verð­bólga mun aukast mikið, ef hún fer að nálg­ast tveggja stafa tölu, þá mun bank­inn þurfa að hækka nafn­vexti, það er engin spurn­ing. En ef aukn­ingin yrði kannski tvö­földun, ef verð­bólga færi í fjögur, fimm eða sex pró­sent mun það hafa í för með sér eitt­hvað atvinnu­leysi og slaka í hag­kerf­inu. Að öllu jöfnu ættu það að vera við­brögð Seðla­bank­ans að lækka vexti við slíkar aðstæður en verð­bólgan myndi hins vegar gera það fyrir bank­ann, í raun og veru.“

Myndi ekki kaupa flugmiða langt fram í tímann

En er þá eitt­hvað sem almenn­ingur gæti gert til að verja sig ef illa fer? Þórólfur segir aug­ljóst að óvissa sé til staðar og hvetur fólk til að staldra við þangað til úr henni greið­ist. „Ég myndi alla vega ekki kaupa mér flug­miða langt fram í tím­ann hjá WOW air. Hvað varðar hvort skyn­sam­legt sé að gera ein­hverjar breyt­ingar á til dæmis hús­næð­is­lánum, þá er afar erfitt að segja til um það. Skil­málar lána eru svo mis­mun­andi. Ef til dæmis fólk myndi vilja breyta úr verð­tryggðu láni í óverð­tryggt þarf að horfa til þess hvort upp­greiðslu­á­kvæði séu á lán­inu. Það er algjör­lega háð skil­málum lána. Ef fólk er hins vegar að taka ný lán, og nafn­vaxta­kjör eru ekki því lak­ari, má gera ráð fyrir því að næstu tvö til þrjú á komi óverð­tryggð lán betur út en verð­tryggð. Það eru hins vegar svo mörg ef í þessu að það er afar erfitt að segja til um nokkurn hlut. Það er óvissa núna en það mun koma í ljós hvernig fer með WOW á næstu dögum og ég myndi því bíða eftir því hvernig vinnst úr þeim málum áður en ég færi að stofna til lang­tíma skuld­bind­inga.

Í ljósi þess sem að framan er rakið má velta fyrir sér hvort WOW air sé svo kerf­is­lega mik­il­vægt fyrir íslenskt efna­hags­líf að stjórn­völd ættu að stíga inn í ferlið. Er félagið of stórt til að falla? „Til að svara þessu þarf fyrst að svara spurn­ing­unni sem við veltum upp hér að framan, hvort við­skipta­líkanið gangi upp. Ef það gerir það ekki, þá er engin ástæða til að við­halda því með rík­is­styrkjum, við gerum það nú þegar í land­bún­aði og ættum nú ekki að fara að bæta ferða­þjón­ust­unni við,“ segir Þórólfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár