Dóttir eldri manns segir ástand hans tvísýnt eftir röð mistaka á spítalanum

Guðrún Vil­hjálms­dóttir fór með aldr­aðan föður sinn á spít­ala vegna gall­steina. Lýsir hún van­bún­aði á aðstoðu spít­al­ans og mis­tökum í umönnun sem varð til þess að faðir hennar bæði veikt­ist og slas­að­ist ítrekað innan veggja spít­al­ans, að sögn hennar. Land­spít­al­inn skoðar nú málið.

Dóttir eldri manns segir ástand hans tvísýnt eftir röð mistaka á spítalanum
Landa­kots­spít­ali Faðir Guðrúnar lenti í röð atvika í dvöl sinni á spít­al­anum. Mynd: landspitali.is

Guðrún Vil­hjálms­dóttir leit­aði á bráða­deild með aldr­aðan föður sinn í byrjun sum­ars vegna gall­steina. Faðir hennar hefur verið heilsu­hraustur alla sína tíð og var að hennar sögn hress í anda, sjálf­bjarga og skýr, áður en komið var á spít­al­ann. Eftir röð atvika sem hún segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir er ástand hans hins vegar nú tví­sýnt og efast hún um að hann nái sér aftur. Vil­hjálmur, faðir hennar, átti meðal ann­ars eftir að verða fyrir því að falla ítrekað í gólfið og brotna oftar en einu sinni í umsjá spít­al­ans.

Stundin ræddi við Guðrúnu um málið og leit­aði við­bragða Land­spít­al­ans, en hún vakti upp­haf­lega athygli á því á Facebook. „Þann 6. júní fór ég með pabba minn á bráða­deild og útkoman var gall­steinar. Hann er full­orð­inn mjög en sá um sig sjálfur, glaður og ein­stak­lega geð­góður maður,“ útskýrir Guðrún í færslu í Facebook-hópnum Góða systir. Faðir hennar var sendur í aðgerð en þar fór eitt­hvað úrskeiðis og var hann því sendur í aðra aðgerð. Hann náði sér þokka­lega að sögn Guðrúnar og var sendur í end­ur­hæf­ingu á Landa­kots­spít­ala. Allt gekk vel í fyrstu en svo fór að bera á veik­indum hjá föður hennar. „Ég tók eftir því að hann var far­inn að hósta mikið, fékk hita og var bara veikur. Ég bað deild­ar­lækni að hlusta hann því ég var hrædd um lungna­bólgu. Hann sá ekki ástæðu til þess.“

Vildi ekki „kolruglað“ gamalt fólk

Lækn­ir­inn sagði sýkla­lyfin sem faðir hennar væri á dekka lungna­bólg­una ef svo væri komið, og vildi því ekki hlusta hann. Guðrún fékk hins vegar aðstoð­ar­lækni til að hlusta hann og þar kom í ljós að brak var í lunga, sem bendir til lungna­bólgu. Aðstoð­ar­lækn­ir­inn gat ekki sett hann á lyf þar sem deild­ar­læknir tæki þá ákvörðun. Þremur dögum seinna lét deild­ar­læknir hana vita að faðir hennar væri með lungna­bólgu og fengi lyf við því, þrátt fyrir fyrri orð um að lyfin sem hann væri á dekk­uðu lungna­bólg­una.  Hafði faðir hennar á þessum dögum veikst enn þá meira. Guðrún segir í sam­tali við Stundina sam­skiptin við deild­ar­læknin hafa ein­kennst af útúr­snún­ingum af hans hálfu. „Ég náði engu sam­bandi við hann. Pabbi er til dæmis eng­inn pillu­maður og hefur bara tekið vítamín og hjarta­lyf yfir ævina. En eitt kvöldið var hann rosa­lega kvíð­inn og hræddur og spurði hvort hann gæti fengið eitt­hvað til þess að slaka á. Ég spurði deild­ar­lækni hvort það mætti ekki létta honum þetta aðeins og fékk þau svör að starfs­fólkið vildi ekki hafa gam­alt fólk hérna kol­ruglað á göng­unum af lyfja­áti. Svo snéri hann sér frá mér og sagði „sorrí“.  Guðrún segir fram­komu deild­ar­lækni þó ekki hafa verið almenn meðal starfs­fólks. „Það er fullt af ynd­is­legu fólki sem var að vinna þarna, en það eru skemmd epli inni á milli.“

„Þar lá hann í sínum hægðum, engin bjalla.“

Faðir Guðrúnar var settur í ein­angrun vegna þvag­færa­sýk­ingar og fékk hann her­bergi þar sem aðeins var hand­virk bjalla, sem honum var ætlað að nota ef hann þyrfti á aðstoð að halda. Þegar að því kom að hann þurfti hjálp til að kom­ast á sal­ernið og hringdi bjöll­unni, kom hins vegar eng­inn þegar hann hringdi. Hann þurfti því að fara sjálfur. Vegna ein­angr­un­ar­innar var honum feng­inn bekk­en­stóll.

Bjallan í her­berg­inuGuðrún segir sér­stakt að nú árið 2018 séu ekki tengdar bjöllur í hverju her­bergi.

Stóllinn brotn­aði hins vegar undan honum, þótt hann væri ekki þungur, og lýsir Guðrún aðkom­unni.

„Hann sest þennan stól og hann er ónýtur, dettur bara í sundur. Og pabbi lá á gólf­inu. Þar lá hann í sínum hægðum, engin bjalla.“ Guðrún segir föður sinn hafa fengið byltu en sloppið við brot. Nokkrum dögum fyrir útskrift lenti hann í því aftur að eng­inn kom er hann hringdi bjöll­unni og fór það svo að hann datt aftur og braut mjaðmakúlu. Í kjöl­farið var hann sendur á bráða­mót­tök­una en eftir langa bið var hann sendur aftur á Landakot sökum pláss­leysis, án þess að gert væri að brot­inu.

„Ég er ekk­ert svo viss um að hann pabbi nái sér nokkuð“

Guðrún sat með föður sínum allan dag­inn og fram á kvöld og seg­ist hún hafa verið óör­ugg með hann. Daginn eftir hringdi hún til að fá stað­festan aðgerð­ar­tíma og var þá til­kynnt að hann hefði dottið úr rúm­inu um nótt­ina vegna þess að gleymst hefði að setja örygg­is­grind­urnar upp. Tveir hryggjaliðir lögð­ust saman  við fallið og sprunga var í öðrum þeirra.

Liggur í og úr óráði

Núna er svo komið að faðir hennar liggur á spít­ala og dettur í og úr óráði vegna lyfja­gjafar og aðgerðar. „Ég er búin að vera í tauga­á­falli yfir þessu. Hann fór inn með gall­steina, hann var aumur eftir þessar tvær svæf­ingar sem hann þurfti að fara í sama dag en hann var bara orð­inn hinn reffi­leg­asti, til­bú­inn í útskrift og að halda sínu lífi áfram. Ef allt hefði verið í lagi þá væri hann heima núna. En ég er ekk­ert svo viss um að hann pabbi nái sér nokkuð, ég efast um það,“ segir hún í sam­tali Stundina.

Guðrún seg­ist ekki vita hvernig gam­alt fólk fari að sem eigi enga aðstand­endur. „Ég er svo til ein í þessu ferli og það hefur ekki verið létt. Það er skortur á upp­lýs­inga­gjöf og sam­skiptum. Það hefur til dæmis aldrei verið hald­inn fundur með mér eða verið útskýrt neitt fyrir mér eða talað við mig á nokkurn hátt. Mér eru bara sagðir hlut­irnir á hlaupum á gang­inum. Ég á bara að vita þetta sjálf.“

Þá seg­ist hún hafa fundið fyrir því að fólk tal­aði oft um að faðir hennar væri nú svo aldr­aður, líkt og það rétt­lætti sinnu­leysið. „Hvað kemur það mál­inu við þó hann sé aldr­aður? Hann á bara að fá alla þá þjón­ustu sem hægt er.“ Hún er viss um að mál föður hennar sé ekki eins­dæmi, en verður þess hins vegar áskynja að fólk veigri sér við að ræða slík mál af ótta við að það bitni á sjúk­ling­unum. „Ég held að aðstand­endur séu mjög hræddir við að tjá sig um svona mál af ótta við að það bitni á sjúk­ling­unum. Þess vegna heyrum við svo lítið um hvað er að ger­ast. Mér finnst það svo hræði­legt, að það sé ein­hver með líf ást­vina manns í hönd­unum og ef maður þegi ekki verði komið verr fram við þá. Fólk er ótta­slegið um það, þó það yrði ekk­ert endi­lega gert.“

Guðrún biður hins vegar fólk um að bera birð­ingu fyrir gömlu fólki.

Stundin leit­aði við­bragða Land­spít­al­ans og fékk þau svör að þau geti ekki tjáð sig um ein­stök mál. Upp­lýs­inga­full­trúi Land­spít­al­ans segir málið þó vera í skoðun. „Málið hefur verið skráð í atvika­skrán­ing­ar­kerfi Land­spít­ala og jafn­framt tekið upp hjá starfs­mönnum gæða­deildar spít­al­ans sem yfir­fara verk­lag og verk­ferla í því,“ segir Jón Baldvin Hall­dórs­son, upp­lýs­inga­full­trúi spít­al­ans, í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Heilbrigðismál

Bandarískt fjárfestingarfélag eignast eina glasafrjóvgunarfyrirtæki Íslands
FréttirHeilbrigðismál

Banda­rískt fjár­fest­ing­ar­fé­lag eign­ast eina glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki Íslands

Sænskt fyr­ir­tæki sem á 64 pró­senta hlut í glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Livio hefur verið selt. Kaup­and­inn er fyr­ir­tækið Gener­alLife sem hefur keypt upp mörg glasa­frjóvg­un­ar­fyr­ir­tæki í Evrópu. End­an­legur eig­andi er fjár­fest­ing­ar­fyr­ir­tæki í Banda­ríkj­unum sem meðal ann­ars er í eigu vog­un­ar­sjóða.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár